Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 12

Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 12
58 NÁTT Ú RU FRÆÐIN G U RIN N má samtímaheimild um atburðinn. Þar segir: „kom upp eldur í hafi í útsuður undan Reykjanesi. Skaut þar landi upp, sem sjá má síðan þeir, er þar fara um síðan“ (Isl. Ann., bls. 293). Ekki er ástæða til að efa þessa frásögn. Árið 1597 hefur C.ísli biskup Oddsson það eftir séra Gísla Guð- hrandssyni (presti að Hvammi f Hvammssveit 1584—1620), að Brimarkaupmenn hali lyrir 15 árum séð eld brenna f hafsdjúpi við Reykjanesskaga, eigi langt frá eyjum þeim, sem af eldi hafa hlotið nafnið Eldeyjar eða Gígeyjar (Ann. Earrago, Islandica X, bls. C). Samkvæmt þessu ætti að hafa orðið neðansjávargos þarna 1583. Nafnið Gígeyjar kemur ekki iyrir í neinu öðru riti, svo mér sé kunnugt, en það er að finna dálítið afbakað (Geie eiar, Cfeye eyar) á hinu merkilega íslandskorti Guðbrands hiskups Þorlákssonar, sem kom út í fyrsta sinn í viðbót við kortabók Abrahams Orkelius- ar í Additamentum IV Theatri Orbis Terrarum 1590 og í Atlas Mercators 1595 (Nörlund, Isl. Kortlægning, Pl. 23, 24). Á þessum kortum er Eldey sýnd og Geirfuglasker suðvestur af henni, en Gíg- eyjar sunnan suðaustan Eldeyjar. Hvort sem Gígeyjar hafa raun- verulega verið samheiti (sýnóným) Eldeyja eða nalii á sérstökum eyjum, er nafnið sjálft sönnun fyrir því, að í eina tíð hafi verið undan Reykjanesi eyjar með gíglögun, sem nú eru horfnar. Nú líða 200 ár, þar til næst verður elds vart undan Reykja- nesi, svo að í frásögur sé fært. Eftirfarandi er promemoria Jörgens Mindelbergs, skipstjóra á húkkertunni Boesand, dagsett 8. júlí 1783. „Viðvíkjandi þeirri brennandi eyju, sem liggur 8i/> mílu rétt- vísandi suðvestur frá syðsta Geirfuglaskerinu við ísland, höfunr vér skráð eftirfarandi frá og með kl. 3 að morgni 1. maí: Kl. 3 um morguninn sáum vér reyk stíga upp úr hafinu og hugð- um vera land en ígrunduðum þetta og niðurstaðan varð sú að þetta væri sérstakt Guðs undur og að náttúrlegur sjór gat brunnið. Við hrepptum síðan þoku og andbyr til 3 maí og slöguðum á þessum slóðum. Stundum sáum vér reykinn og stundum ekki. Kl. 5 að morgni 3. maí fengum vér hyr og tókum stefnu á jökulinn. Kl. 7 birti í lofti og sást þá eyland sem þennan hræðilega reykjai- mökk lagði upp af. Sigldum upp að því til jress að sjá lögun jress og þegar vér vorum í hálfrar mílu fjarlægð urðum vér frá að hverfa vegna ótta um að skipverjar myndu falla í ómegin sakir hins hræði-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.