Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURI NN
07
En svo sleppt sé gamni Fjallkonunnar. Hvað skal segja um þessa
eyju. 1879 sjá menn gos en enga ey; fimm árum síðar sjá menn
nýja ey en ekkert er vitað með vissu um gos. Raunar segir í Fjall-
konugreininni: „Víst hafa nú í sumar verið eldsumbrot þar“ (Fjall-
konan 13. blað 1884. 20. árg., bls. 52), og setur greinarhöfundur
jarðskjálfta sem vart hafi orðið snemma i ágúst, í samband við upp-
komu eyjarinnar. Fn ummæli hans um eldsumbrot geta verið byggð
eingöngu á ofangreiudu bréfi vitavarðarins. Dönsk lierskip, sem
fóru á vettvang um sumarið, urðu hvorki vör við eyju né eldgos.
Þrátt fyrir frásögn vitavarðarins verður vart talið sannað, að eldgos
hafi orðið undan Reykjanesi 1884 og að jtar hafi myndast eyja
stærri en Eldey virðist með ólíkindum.
Rétt í jn'í að ég var að ganga frá þessari grein til prentunar fræddi
Gestur Guðfinnsson, góðkunnur Ferðafélagsfrömuður og ljóðskáld,
mig á því, að hann hefði eigi alls fyrir löngu talað við sjómann, sem
hefði fyrir mörgum árum orðið var við neðansjávargos undan
Reykjanesi. Fyrir milligöngu Gests hafði ég uppá þessum manni,
Jafet Sigurðssyni, sjómanni, sem búsettur er í Hafnarfirði en dvelst
sem stendur á Vífilsstaðahæli. jafet tjáði mér, að fyrri hluta júnf-
mánaðar 1926 hefði hann, þá unglingur, verið í róðri ásamt þrem-
ur öðrum, á mótorbátnum Braga lrá Njarðvík. Voru þeir með
línu skammt norðaustur al’ Eldey. Veður var stillt, svo að sjór var
nær spegilsléttur. Þá sáu þeir koma eins og stórar bólur á sjóiun
nærri bátnum. Þessi ólga í sjónum ágerðist mjög og sjórinn „fór
að toppa allmikið", svo fóru að fljóta þarna upp allmargir dauðir
fiskar, !>æði þorskur og þyrsklingur, og töldu þeir því að lieitt ntyndi
undir. Þeir horfðu á þetta nokkrar klukkustundir og var þetta farið
að minnka er þeir héldu frá staðnunt, en þeim þótti þó ekki ráð-
legt að halda sér lengur þarna nærri. Þeir höfðu verið á þessum
slóðum nokkra undangengna daga en ekki orðið varir við neitt
óvenjulegt, en næstu daga fóru þeir til róðra á aðrar slóðir. Þeir
sögðu frá þessu fyrirbæri, er þeir komu í land, en flestir voru van-
trúaðir á frásögn þeirra. Ekki vissi Jafet til þess að aðrir bátar hefðu
þá verið á þessu svæði.
Ekki virðist mér vali leika á að þarna hafi verið um að ræða ein-
hver smávegis eldsumbrot á sjávarbotni. Slík eldsumbrot hafa vafa-
lítið iðulega getað átt sér stað á umliðnum öldum án þess að nokk-
ur yrði við þau var.