Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 32

Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 32
78 NÁTTIJ RU F R/F.ÐI N G U RI N N grágrýtinu. (Jónsson, 1960). Svo virðist sem Fossvogslögin alkunnu séu inni í grágrýtinu, en vel geta þau fyrir það verið frá sarna tíma •og lögin við Klifberg, enda eins að útliti. Víða hafa íundi/.t setlög undir grágrýtinu við boranir, en ekki verður það rakið hér. IJykkt grágrýtisins er að sjálfsögðu mjög mismunandi, en lítið er um hana vitað nema út við sjó á nokkrum stöðum og svo þar sem ltorað hefur verið, en einnig þar er nokkur vafi á, því flestar boranirnar eru gerðar með höggbor eða gufubornum og kjarnar eru ekki til. I Reykjavík sjálfri er oft bólstrabergslag, stundum alþykkt, undir hinu venjulega grágrýti. Líklegt virðist að bólstrabergið sé mynd- að af grágrýtishraunum, sem runnið hafi í sjó út en venjuleg grá- grýtishraun myndast fyrst þegar hraunin hafa fyllt svo hátt að þau renna á þurru. I.ítið er enn þá vitað um millilög í grágrýtinu sjálfu, enda er ekki talið líklegt að mikið sé um þau. Hraunin eru dyngjuhraun, og líklegt virðist að gosin hafi verið svo Jrétt á meðan eldstiiðvarnar voru virkar að lítil von sé um að gegnumgangandi setlög hafi haft tíma til að myndast. Þó hal’a rnörg hraunin án efa ekki náð að Jtekja nema nokkurn hluta svæðisins, oggeta þá millilög hafa mynd- ast á ýmsum stöðum. Þau geta svo hafa orðið undir síðari hraun- flóðum. Við Rauðhóla var t. d. borað í gegnum sandleg frá 12—22 m dýpi. Ekkert náðist í kjarna af þessum sandi og vitum við því ekki hvernig hann var. Millilag í grágrýtinu kemur fram skammt vestan við Árbæjarstíflu. Á nokkrum stöðum á ])ví svæði, sem hér er um að ræða, kemur fyrir hólstraberg á yfirborði. Sums staðar tilheyrir það án efa grá- grýtinu, en á öðrum stöðum er vafasamt hvort svo er. Á Brimnesi er bergið elst venjulegt grágrýti en neðri hluti bergsins allur er myndaður sem bólstraberg. Athuganir á staðnum og smásjárrann- sóknir á berginu sýna að um einn og sama hraunstraum er að ræða. Bólstrar í grágrýtinu korna einnig fyrir í Engey austanverðri, sunn- an megin við Kópavog, við austanverðan Arnarnesvog og við sjó- inn l'yrir neðan Garða á Álltanesi. (Sbr. Jarðfræðikort af nágrenni Reykjavíkur eftir Tómas Tryggvason og Jón Jónsson). Syðst á Sel- ási kemur bólstraberg líka fram, en það virðist vafasamt hvort það tilheyrir grágrýtinu. Við borun eftir köldn vatni sem Garðahrepp- ur lét gera við Vífilsstaðavatn var komið í bólstraberg á um 9 m dýpi niðri í grágrýtinu og hélst það til botns í holunni á 32 m dýpi.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.