Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1933, Síða 20

Náttúrufræðingurinn - 1933, Síða 20
114 NÁTTÚRUFR- lífsstarfið léttara, og minni hætta á, að menn gefist upp í barátt- unni. Þróunin er lögmál lífsins í náttúrunni, hún er það einnig á meðal mannanna. Þess vegna getur ekkert skipulag, sem manns- heilinn hefir hrundið í framkvæmd, enzt til lengdar, nema lög- mál það, sem það byggist á, sé lögmál lífsins, þróunin. Dragi hver út af því þá lærdóma, er hann helzt kýs. Steindór Steindórsson. Um erni. Víða má sjá þess getið, að menn eru hræddir um, að ern- inum sé stöðugt að fækka hér á landi. Virðist svo, sem margir telji það mikið tjón, ef örninn, svo fríður og göfugur sem hann er, gengur með öllu af þessum heimi. Ýmsir hafa þó aðra meiningu þar um og gráta þurrum tárum örlög arnarins. Flest munu það raunar vera óbreyttir alþýðumenn, sem máske ekki kunna að meta fjölbreytni dýralífsins í landinu, en hafa hins vegar náin kynni af erninum og vita, hver skaðræðisgripur hann er og vágestur, öllu friðsömu fugla- og dýralífi á þeim slóðum sem hann heldur sig. Eg legg engan dóm á það, hvort erninum fjölgar eða fækkar. En megi trúa nokkru af því, sem um það er sagt, þá er ekki alveg ósennilegt að honum fækki heldur, enda bendir og sumt í lifnaðarháttum hans til þess, að dagar hans muni ekki vera með öllu óteljandi hér á landi. Hann er að vísu al- friðaður að lögum, en það er mjög vafasamt, hvort lögin geti bjargað honum frá glötun. Líklega er nú mest um erni hér á landi við Breiðafjörð. Hér kvartar enginn um skort á emi, enda er hann alls ekki sjaldgæfur fugl hér um slóðir, þó áður kunni að hafa verið meira um hann. Veldur ]>ví að sjálfsögðu, hversu góð lífsskil- yrði náttúran hefir búið honum hér í byggðarlaginu: Ókleyfir hamrar, háir og sæbrattir víða, gnægð fugls og eggja í varp- löndum og fuglabjörgum, og silungur í grunnum og grýttum ám. Unglömb og aðra smælingja skortir heldur ekki, þegar ekki er annað fyrir klóm hans í svipinn. En þó örninn sé bæði stór og illvígur, kemur það þó fyrir, að hann ætlar sér ekki af um veiðiskapinn. Græðgi hans og

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.