Náttúrufræðingurinn - 1937, Qupperneq 16
10 NÁTTÚRUFKÆÐINGURINN
iiimiimiimimiimmmmmiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiit
um helmingnum annari. — Hugsið ykkur tré, sem öðrum megin
bæri reyniviðarblöð og hvít, ilmandi blóm, en hinum megin þyrna
og rauðar rósir. Slíkt kynjatré vilduð þið eflaust gjarnan hafa
í skrúðgarði ykkar til heimilisprýði og ekki er loku fyrir skotið,
að einhvern tíma takist að framleiða það. Þetta mun þykja ótrú-
legt, en margt ber við undarlegra en þetta í náttúrunnar ríki. Æði-
margt af því, sem áður var talið óframkvæmanlegt eða jafnvel
galdrar, er nú orðið að veruleika.
Hjá hjúpgræðlingunum er ekki heldur um eiginlega kyn-
blendinga að ræða; hver fruma tilheyrir aðeins annari af tegund-
um þeim, er græddar voru saman. Samgræðlingur af þessu tagi
var framleiddur árið 1908 í bænum Túbingen, og virtist vera
kynblendingur tómats og náttskugga. Hafði tómatplanta verið
grædd á náttskugga-stofnplöntu. Síðan var samgræðlingurinn
þverstýfður á samgræðslustaðnum. Upp af sárfletinum uxu alls
14 sprotar. Af þeim voru 8 hreinir náttskuggasprotar, 5 tómat-
sprotar og 1 samgræðslu-kynblendingur. Laufblöð kynblendings-
ins líktust náttskuggablöðum, en bikarblöðunum og lögun og lit
krónublaðanna brá til beggja foreldra. Plantan hafði sömu lykt
og tómatplanta, og var hærð á sama hátt.
Tilbrigði þetta var nefnt Solanum túbingense, vakti mikla
eftirtekt og var fyrst í stað álitið kynblendingur. Baur og Winkler
sönnuðu samt brátt að svo var eigi og sýndu fram á að hér væri að-
eins um samgræðlinga að ræða. Jurtin var skrítilega sköpuð. Húð-
in var mynduð af tómatvef eingöngu, en allt hið innra var nátt-
skuggi. Það má líkja plöntunni við fót klæddan í sokk, tómatvef-
urinn lá eins og hjúpur um náttskuggavefinn eða „kjarnan".
Skýringin á þessu einkennilega fyrirbrigði liggur í því, að
brumhnapparnir á sárfletinum eru myndaðir af fleiri en einni
frumu. Ein fruman getur þá orðið ættmóðir húðarinnar, en það
sem innundir er, getur verið myndað af annari frumu. í dæminu
á undan var þá húðin mynduð af tómatfrumum, en hitt hafði
þróazt af frumum náttskuggans. Auðvitað getur náttskugginn
líka orðið yzt sem hjúpur um tómatinn, og eru því skilyrði fyrir
mikla fjölbreytni meðal hjúpgræðlinga. Hjúpurinn getur einnig
verið misþykkur, byggður úr einu eða fleiri lögum af frumum.
Rannsóknir á afkvæmum hjúpgræðlinga sanna líka, að þeir
eru aðeins samgræðlingar, en ekki kynblendingar. Afkvæmin verða
nefnilega alltaf eins og annað hvort foreldranna, en milliliðir
koma ékki fram við kynæxlun. Hverju foreldranna afkomend-