Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 45

Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 39 HiiiMiiiiiiiiiiiiHitiiiiiiiMiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiiiimmiiiiimiiiiimmiiiiiiiimmnmmmnmmmmmnmnmmmmmnmm' Hvað er langt til stjarnanna? Þegar við horfum hrifin á heiðstirndan himininn, gerum við okkur ef til vill ekki í hugarlund, hvílík órafjarlægð er til gim- steinanna í geimnum, stjarnanna. Fari maður að hugsa um fjar- lægðirnar í himingeimnum, héðan til fastastjarnanna, og frá einni stjörnuþokunni til annarar, sundlar hugann, maðurinn, jörðin, sólkerfið verður að engu, og tíminn hverfur eins og dropi í úthaf ómælisins. Seinna getur Náttúrufræðingurinn ef til vill flutt efni, sem fjallar nánar um þetta; í þetta skipti skulum við virða fyrir okkur fjarlægðirnar í sólkerfinu okkar, með því að virða fyrir okkur, hve lengi við myndum vera á leiðinni héðan til reikistjarn- anna og til sólarinnar. Ef við gengjum dag eftir dag, 10 km á klukkustund, 10 klst. á dag, gætum alltaf haldið áfram með sama hraða, og mættum hvergi torfærum, þá myndum við vera 400 daga að ganga kringum jörðina. Við leggjum af stað frá Grímsey 1. marz 1937, og förum þessa ímynduðu braut beint til norðurs. Við rekumst þá á Græn- land á leiðinni, og verðum að fara yfir nokkurn hluta þess, en þann 27. marz er fyrsta áfanganum náð. Við erum komin á Norð- urheimskautið. Við höldum áfram dag eftir dag sömu stefnu, sem nú er til suðurs. Fyrst liggur leiðin yfir endalausan ís, en þá yfir úthaf. 18. apríl sjáum við land, það er norðurströnd Austur-Síber- íu. Við höldum áfram yfir Síberíu, þar næst yfir skagann Kamt- schatka, en þá tekur Kyrrahafið við, og nú fer okkur heldur en ekki að hitna. 4. Júní erum við á Miðjarðarlínu, NA af Nýju Gúíneu, og ennþá höldum við áfram yfir óendanlegt haf, fram hjá Ástralíu, sem er fyrir vestan okkur, og Nýja Sjálandi, sem er fyrir austan. Þann 20. september höfum við aftur „land undir fæti“, við nálgumst nú Suðurheimskautið, en þangað erum við komin 13. október. Við höldum sömu stefnunni þaðan, nú til norð- urs, burt frá kuldanum, og eftir nokkra daga erum við aftur kom- in út á haf. 21. janúar 1938 erum við aftur komin á Miðjarðar- línuna, nú erum við á milli Afríku og S-Ameríku, þar sem mjóst er Atlantshafið, en hvergi sjáum við land. Við höldum áfram til norðurs, fram hjá Afríku, Spáni og Bretlandseyjum, og komum heim til föðurhúsanna 5. maí 1938, og höfum þá verið 400 daga á leiðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.