Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 15
iiiiiiiiiiiiiimmimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimitiiiiiiiiiiiiz
Gróðurrannsóknir á Hesteyri
og í Aðalvík.
Sumari'ö 1936, í ágústmánuði, fékkst eg við gróðurathuganir
á Vestfjörðum. Dvaldi eg fyrst á Hesteyri og fór síðan að Sæbóli
í Aðalvík. Safnaði plöntum á báðum þessum stöðum og einnig
nokkuð á ísafirði. Vetrarríki er mikið á þessum slóðum, og voru
snjóskaflar skammt frá sjó, t. d. á Hesteyri. Gróður er samt tals-
verður, og er sérstaklega mikið af burknum, stóðu grænir brúsk-
arnir hvarvetna við hlíðarræturnar og mynduðu þar sumsstaðar
heil burknabelti, einkar fögur. Aðaltegundin er þúsundblaðarós (A.
alpestre). Er víða burknagróður mikill á Vestfjörðum; gægjast
grænir burknatopparnir allsstaðar fram á rökum stöðum milli
steina, því að víða er grýtt, og svo í skógarkjarri þar sem það
finnst ennþá. Á Hesteyri er lítið undirlendi og gróðurinn því að
miklu leyti í fjallshlíðum, og varla um vatnagróður að ræða.
í Aðalvík er meira láglendi, talsverðar engjar og dálítið stöðu-
vatn fyrir neðan prestsetrið ,,Stað“. Ýmsar túnplöntur, sem víð-
ast hvar á landinu eru algengar, eru sjaldgæfar á þessum stöðum,
t. d. smári, vallhumall, njóli o. fI., og snarrótarpunt vantar hér
eins og víða á Vestfjörðum. Niður við sjóinn í Aðalvík eru stórir
mýraflákar þar sem mýrafinnungur (Scirpus cæspitosus) er aðal-
grasið. Annars eru algengustu engjaplönturnar þessar: ígulstör,
vetrarkvíðastör, hengistör, mýrastör, gulstör, hárleggjastör, mýra-
finnungur, klófífa, hrafnafífa, horblaðka og engjarós.
Á Hesteyri er dálítið birkikjarr í hlíðinni innan við síldar-
verksmiðjuna, en fremur er það smávaxið, enda ógirt og auðsjá-
anlega talsvert sligað af snjóþyngslum. I kjarrinu er berjaland
mikið og burknagróður.
Burknategund ein, hlíðaburkni, (Cryptogramme crispa) vex á
Hesteyri og hvergi annars staðar á landinu svo kunnugt sé. Árni
Friðriksson meistari fann plöntu þessa haustið 1932. Sumarið
eftir sá eg þessa nýju tegund á sama stað, án þess þó að vita um
fund Árna, og síðastliðið sumar athugaði eg gróður á þessum slóð-
um og skoðaði aftur fundarstaðinn. Vex mikið af burknum þarna
í brattri, klettóttri fjallshlíð fyrir ofan og utan síldarverksmiðj-
una. Klettahlíðin liggur móti vestri og suðvestri og blasa klettarn-
ir við Hesteyraránni og þorpinu á Hesteyri, Sá eg mest af burkn-