Náttúrufræðingurinn - 1937, Side 39
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
33
iiiiimimiiiiimimmimimiiiiimiiiiiiimmiiimiiiiimmimiiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiimimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiimmii
f framandi landi.
Harmur sá, sem kveðinn er að mönnum, þegar flugmenn far-
ast eða sjómenn týna lífi og lenda í hrakningum, gæti ef til vill
kennt okkur að skilja þær raunir, sem dýrin komast í, þegar þau
Parula, americana.
verða fyrir hamstola æði náttúruaflanna. Jafnvel fuglarnir, sem
geta borist á vængjum til hentugri staða, þegar sverfu r að í
kringum þá, lenda stundum í hrakningum, sem jafnvel mannin-
um mætti ofbjóða. Hingað til landsins koma oft og einatt gestir
úr fjarlægum löndum, stundum mjög illa til reika. Margir þeirra
fugla, sem hingað hrekjast, ef til vill mörg þúsund km frá heim-
kynnum sínum, geta vart veitt sér hér nokkra björg, vegna þess
að náttúruskilyrði eru hér allt önnur en þar, sem þeir eiga heima.
Fuglarnir, sem myndin er af, eru hjón þeirrar tegundar (Pa-
rula amerikana (L)), sem Bjarni Sæmundsson nefnir „Blágula
3