Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1937, Síða 48

Náttúrufræðingurinn - 1937, Síða 48
42 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 111111111 í 1111111111111! 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111,111 (1, 1111,11111 (M11,1,,, ((((, I, I, I,, I (, I!,,,, (t; (r r: c; hálffallinn sjó. Var og veiðin stundum mikil, allt að 50—70 fisk- ar á fjöru, þegar mest var. Skal þá minnast á laxveiðina eftir þennan útúrdúr. Meðfram Þverá í Borgarfirði var mikið svartbaksflug í mínu ungdæmi. Varp hann þá mikið í Hólmavatni á Grjóthálsi, upp frá Höfða í Þverárhlíð, og einníg eitthvað fram á Tvídægru. Lá því leið hans nálægt ánni, er hann sótti til sjávar frá varpstöðvunum í ætis- ieit. Á vorin í júní, þegar vatnsmagn árinnar var lítið, sat hann oft á grunnum brotum úti í ánni og skyggndist eftir fiskigöng- um. Fór þá laxinn oft í torfum upp árnar. Réðst svartbakurinn á laxinn á brotinu með vængjaslætti og hinum mesta atgangi. Mun laxinum hafa fatast stefnan við læti þessi og stundum hafa gengið sjálfkrafa upp á grynningar og fuglinn ráðið þar niður- lögum hans. Stundum drap fuglinn hann áður en á grynningar kom, og var bardaginn þá oftast skammur. Hygg eg að fuglinn hafi þá höggvið gogginum í haus laxinum og dregið þannig allan mátt úr honum, eða rotað hann. Eru öll líkindi til, að fuglinn hafi skynjað þann stað, sem laxinn var veikastur fyrir. Flestir þeir laxar, sem eg sá svartbakinn draga, voru ekki meir en ca. 8 pund. Þó man eg eftir 12 punda laxi, er eg tók af honum. Heyrði eg getið um stærri laxa, sem fuglinn hefði dregið. Þarf fuglinn ekki lítið átak og snarræði til þess að ráða niðurlögum slíkra fiska, er þeir eru að ganga upp árnar nýkomnir úr sjónum. Dróg svart- bakurinn mest um varptímann, — sennilega þá hungraðastur, — og mun mest hafa kveðið að þessari veiði í Þverá og þó einkum í Örnólfsdalsá framan Norðtungu. Rennur áin þar á eyrum í smá- kvíslum. Var mér sagt, að áður fyrr hefði á vorin, er áin var lít- il, verið „vakað yfir ánni“, — unglingur látinn vaka á nóttunni og hafa gætur á, hvort svartbakurinn dró, og vera þá viðbúinn að taka veiðina af honum. Þótti þetta starf borga sig þá. Eg hefi verið nokkur ár hér við Laxá í Laxárdal og er sú á oft mjög vatnslítil á sumrum og þá laxganga töluverð eftir henni, en ekki hefi eg orðið þess var, að svartbakurinn dragi þar lax, og er þó fjöldi hans meiri og aðstaða hans þar engu lakari en við Þverá. Fjöruæti er þar reyndar nærtækara og hann mun taka sil- ung við árósana. Virðist svo að ekki séu allir svartbakar jafn- miklar laxveiðiklær og að það sé mjög óvíða, að fuglinn taki miðl- ungslaxa úr ám. Hafa ekki ef til vill nema nokkrir einstaklingar skilyrði til þess og ganga þeir hæfileikar þá sennilega í erfðir og þroskast við æfingarnar og kennslu hinna eldri fugla.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.