Náttúrufræðingurinn - 1937, Síða 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGUKINN 45
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
sóknum hans og félaga hans þá varð neikvæður. Hann fann
ekkert móberg, sem myndazt hafði við bað eldgos, og þ.essvegna
var gerður út þessi leiðangur 1936.
Hér er ekki hægt að gera nánar grein fyrir þessari ritgjörð,
en um niðurstöður þær, sem höfundarnir komast að, verður að
nægja að taka þetta fram: Það eru til tvenns konar eldgos,
kraftmikil (energirige) og kraftlítil (energifattige). Við þau
fyrrnefndu myndast sama sem ekkert af hraunum, þannig var
Vatnajökulseldgosið 1934, sem bræddi um 10 teningskílómetra
af ís og spjó ösku og gufu um 15 kílómetra í loft upp. Við hin
kraftminni gos myndast hraunin. Móbergið g.etur myndazt sem
„lagberg" á hvaða tíma sem er, ef basaltglerkorn þau, sem helzt
einkenna það, eru fyrir hendi. Basaltgler-kornin myndast við
veðrun basaltglers, ýmist þar sem það hefir myndast uppruna-
lega, eða þar sem það er niður komið seinna, fyrir áhrif og um-
brot náttúruaflanna.
Walter Iwan: Beobachtungen am Drangajökull,
NW-Island. Zeitschrlft der Gesellschaft fur Erd-
kunde zu Berlin, 1936, Nr. 3/4.
Höfundurinn hefir áður skrifað bók um Island (Island, Berlin
1935), hennar er getið í Náttúrufræðingnum, VI. árg., bls. 107.
Hér birtist árangurinn af rannsóknum hans á Drangajökli og
umhverfi hans 1935.
Höf. bendir á, að jökullinn hafi minnkað mjög á síðari tím-
um, eins og ljóst verður, ef gerður er samanburður á eldri og nýrri
kortum af því svæði, sem hann þekur. Lítið mun þó vera á eldri
kortum að græða. Jökullinn er nú um 200 ferkm., og af þeim fleti
er aðeins 125 ferkm. fyrir ofan snjólínuna, sem er tæpl. í 500
m hæð að norðan, og um 650 m að sunnan. Ennfremur sýnir höf.
fram á, að vegna þess hve landið, sem jökullinn hvílir á, er
flatt, minnkar hann stórum að flatarmáli, ef snjólínan færist
eitthvað ofar. Að öðru leyti verður ekki þessi ritgjörð rakin hér.
A. C. Hardy, C. E. Lucas, G. T. D. Henderson
and J. H. Fraser: The Ecological Relations be-
tween the Herring and the Plankton investigated
with the Plankton Indicator. Journ. of the Mar.
Biol. Ass. of the United Kingdom, Vol. 21, No. 1.
1936.
Þessarar ritgjörðar er ekki minnst hér vegna þess að hún
fjalli um íslenzka náttúrufræði, heldur af því, að efni hennar,