Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1942, Side 19

Náttúrufræðingurinn - 1942, Side 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 145 Nú liafa nokkrir Vestfirðingar, einlcum Isfirðingar, liafið surt- arbandsnám að nýju í Botni. Er unnið i gömlu námunni frá 1917. Vinnsluskilyrðin eru nú töluvert ólí’k því, sem þau voru þá. Að sumu leyti lakari, að öðru leyti ákjósanlegri. Þau eru t. d. óhægari nú en í fyrra stríði, að því leyti, að kaupgjald er nú alll miklu hærra, svo lála mun nærri, að dagkaup verkamanns, sem vinnur i Botnsnámu í ár, svari til vikukaups námuverkamanns 1917. Það gerir námureksturinn hins vegar hægari, að nú er komið gott híl- vegasamband frá niámunni og lil ísafjarðarkaupstaðar. Ennfrem- ur til Suðurejrrar við Súgandafjörð, og til Flateyrar við Önundar- fjörð. Til allra þessara staða má nú teljast auðvelt að koma surt- arbrandinum, þá mánuði ársins, sem vegurinn er fær bílum sakir snjóa. Þingeyrarkauptún á líka að geta fengið surtarbrand frá Botnsnámu með bílum, því þó að flytja þurfi á sjó yfir Dýraf jörð, frá Gemlufalli, er það engin frágangssök. Sennilegast væri hezt að flytja bílana með hlassinu á yfir fjörðinn. Á þann hátt myndi brandurinn molna minnst, en surtarbrandssalli logar að jafnaði illa í þeim eldstæðum, sem hér tíðkast. Botnsnáma liggur 135 m yfir sjó. Námugöngin eru grafin lárétt inn í fjallið. Jarðlagaskipunin er, eftir því sem til sést, á þessa leið: Efst: a. Skriðuorpnir basalthamrar. b. Leirsteinn, efst rauðbrenndur, neðar dökkur1), og þar með viðarbrandsflísum í. Myndar loflið i námugöng- unum. c. Surtarbrandslag, bæði viðarbrandur og steinbraiulur. Þetta lag er brotið. d. Harður, dökkur1), sendinn leirsteinn. Myndar gólfið í námugöngunum. Neðst: e. Basalt. Aðalnámugöngin eru tvö, hvort um sig nú rúmir 100 m á lengd. Þau eru um 2 m á breidd og víðast manngeng. Sums staðar eru þau þó nokkuð lægri. Úl frá aðalgöngunum hafa verið grafnir básar og styttri göng. Þalcið virðist svo traust, að ekki þarf að reka stoðir undir það því til stvrktar, ef á réttan hiátt er frá því gengið i upphafi. Námugöngin ligg'ja í grunnri samhverfu, þ. e. a. s. brand- lögunum hallar að göngunum til beggja hliða. Hallinn virðist þó nieiri að sunnan og austan. Surtarbrandslagið, sem unnið er, mældist á athugunarstaðnum 1.25 m. í því liggja nokkrar leirrákir, 1) Liturinn er ákvarSaður á röku berginu. 10

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.