Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 10

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 10
72 NÁT TÚRUFRÆÐINGURINN Ingólfur Davíðsson: Staða íslands í gróðurbeltaskipun jarðarinnar Árið 1805 kom út rit, þar sem leitazt er við að gera grein l’yrir sam- bandinu milli gróðursins og umhverfisins, þar sem liann vex. Höf- undurinn, Þjóðverjinn Alexander von Humboldt, er talinn faðir hinnar vísindalegu gróðurlandafræði. Síðar liafa margir lagt skerf til þessara fræða. Má nefna svissnesku feðgana de Candolle (1855) og af Norðurlandamönnum Danina Eug. Warming og Chr. Raunkiær. Var rit Warmings, Plantesamfund, um skeið talið grundvallarrit í gróðurlandafræði. Gróðurlandafræðin er þríþætt. Hún hermir, Itverjar tegundir vaxi á tilteknum svæðum; einnig hvernig tegund- irnar skipa sér í félög eða gróðurhverfi — lýsir sambandi gróður- hverfanna og skilyrðanna. Loks segir hún frá þróun og sögu gróður- ríkisins á hverjum stað. Loftslag og ýmis ytri skilyrði ráða mestu um hvaða tegundir-vaxa á hverjum stað á jörðinni. Hitt verður sarnt jafnframt að liafa í huga, að tegundirnar eru misjafnlega vel hæfar til að ná mikilli útbreiðslu. Ræður þar unr aldingerð og margt annað. Einnig geta þær nrætt margvíslegum tálmunum á landnámsferðunr sínum. Áhrifamestu tálmanirnar eru höf og stórvötn, fjallgarðar, eyðimerkur og stór skógabelti. Gróðurríki ákveðins svæðis er nokkurn veginn í jafnvægi, að ó- breyttum skilyrðum. En ýnris ytri öfl geta valdið breytingum. Teg- undir flytjast inn og aðrar deyja út. Maðurinn hefir víða gerbreytt gróðri lreilla landa, nreð ræktun, beit, skógarhöggi o. s. frv. Þar sem jréttbýlt er, raskast Irið forna jafnvægi nrilli tegundanna tiltölulega fljótt. Þar senr ekki eru sérstakar ytri tálnranir, eru það lífskjörin, hiti, vatn, loft, birla og jarðvegur, senr skipa gróðrinum niður í hverfi og gróðurbelti. Eru lritinn og rakinn oft örlagaríkastir. Skal nú lítil- lega vikið að þessunr náttúrulögmálum. — Nokkur lriti er öllum gróðri nauðsynlegur, en lritaþörfin er nrjög misjöfn, bæði eftir teg- undunr og einnig eftir öðrum skilyrðunr. Liggur t. d. sama árshita- lína um ísland og sunnanvert Rússland, þótt gróðurinn sé afar ólíkur

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.