Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1945, Side 14

Náttúrufræðingurinn - 1945, Side 14
76 NÁT TÚRUFRÆfilNGURINN IV. Nýja Miðjarðarrtkið, þ. e. Mið- og Suður-Ameríka. V. Ástralía. VI. Suðurhciniskautarikið. Skal þessi skipting ekki nánar rædd liér. Við ákveðið loftslag, verða \ iss gróðurlendi ríkjandi og er skiptingin í gróðurbelti reist á því. Ymis afbrigði koma einnig til greina, t. d. óvenjumikið votlcndi eða þurrlendi, álirif mannanna á gróðurinn o. s. frv. Jörðinni er skijit eftir loftslagi í 7 belti: hitahelú, tvö heittempruð belti, tvö tempruð belti og heimskaulabeltin tvö. Úrkomumunur o. 11. deilir þeim öllum í ýmsar deildir. Hitabeltið liggur um mið- jarðarlínu og að 20—25° báðum megin. Eru takmörkin sett þar, sem Iiiti kaldasta mánaðarins er 14—15° C. Kringum miðjarðarlínuna er kallað kyrrabelti, þar eru liiti og úrkoma mikil og nokkuð jöfn árið um kring. Þegar fjær dregur, breytist þetta þannig, að sumarið verður regntími, en veturinn þurrktími. Er það einkum greinilegt á staðvindasvæðunum, norðaustan á norðurhvelinu, suðaustan á suð- urhveli. Úrkoma er víða mjög mikil. Tvö gróðurlendi eru einkurn drottandi í hitabeltinu — regnskágur og savannagróður. Regnskógur er einkum ríkjandi í kyrrabeltinu. Það er gróskumesti gróður á jörð- inni, t. d. við Amazon-fljótið í Suður-Ameríku. Er þar allt grænt árið um kring og ógreitt mjög yfirferðar í jréttum skógunum, þar sem allt er ofið saman af flækjum, jurtkenndum og trjákenndum (Indlandseyjar, Nýja-Guinea, Kongólöndin, Guineaströnd Afríku og Amazonlandið í S.-Ameríku). A svæðum sumarregnsins og stað- vindanna í hitabeltinu liggja savannalöndin. Það eru einkum gras- lendi með runnum, einstökum trjám eða trjálundum á víð og dreif. Verður grasið stundum meira en mannhæðarhátt. Kragar af skógi eru þar sem raklendast er, t. d. meðfram ám og vötnum. Helztu sa- vanna-svæðin eru á Indlöndunum báðum, Mið-Ameríku, nyrzta hluta S.-Ameríku og Súdan á norðurhveli jarðar, en á suðurhveli suðurhluti Brazilíu, norðurströnd Ástralíu og Zambesílandið í Afríku. Liggja meginhlutar beggja miðjarðarríkjanna í hitabeltinu. í kyrrum fjörðum og víkum í hitabeltinu er mjög einkennilegur gróður, Mangroveskógar eða leðjuskógar. Fjöruleðjan er súrefnis- lítil. Er þess vegna mjög þroskaður loftleiðsluvefur i trjárótunum og rótarendarnir vaxa jafnvel upp í loftið líkt og staurar kringum trén til að afla súrefnis. Báðum megin hitabeltisins liggja heittempruðu beltin. Þar koma stundum næturfrost á vetrum. Meðalhiti kaldasta mánaðarins er 5— 15° C. eftir breiddarstigi. Úrkoman er rnjög misskipt og er beltunum

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.