Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 50
112
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
muni eigi geta eignast afkvæmi. En eftir að ég liafði kynnzt þeim,
fannst mér alveg eins líklegt að hið gagnstæða gæti átt sér stað. Mér
fannst — og finnst enn — eitthvað svo ótrúlegt við að dýr, sem búa
yfir jafnmiklu fjöri og þau, og virðast gædd eins miklum lífsþrótti
og h'fsgleði — liggur mér við að segja — sé það eigi áskapað, að geta
viðhaldið ætinni, en það er þó aðalætlun „móður náttúru" með
livern einstakling sem hún sendir út í heiminn. Og nú liefir „Móra“
sýnt, að lienni er ekki alls varnað í þeim efnum.
Ekki er mér kunnugt um, að silfurrefur og íslenzkur fjallarefur
hafi átt þau mök saman, að afkvæmi hafi orðið af, nema þetta eina
dæmi, sem hér að framan er gert að umtalsefni. Ef svo er, að þetta
séu einu kynblendingarnir af þessu tagi sem komið hafa fram á þenn-
an liátt, þá er það talsvert þýðingarmikið atriði, hvort hægt er að láta
blendingana eignast afkvæmi í eldi lijá mönnum, auk þess fróðlegt,
einkum ef hægt væri að ala fram nýjan refastofn með sérkennum,
og þá ekki sízt glæsilegum lit og hárafari. Svo virðist, sem „Gul“ hafi
til að bera bæði litarfegurð og hárbragð, sem sé alveg einstakt í sinni
röð, og þetta gefi von um, að sams konar feldir og hún hefir fram að
ljjóða, geti orðið verðmikil verzlunarvara á heimsmarkaðinum. Og
því er eigi áhorfsmál — að mínurn dómi — að reyna þetta til liins ýtr-
asta, lóga eigi dýrunum, fyrr en öll von er þrotin um, að þessu marki
verði náð. — En hætt er við, að takist þetta ekki — að láta þá eignast
afkvæmi á næsta vori — þá sé jrrotin þolinmæði eigenda jreirra. Þeir
liafa líka þegar sýnt lofsverða viðleitni í þessu máli og kostað svo
miklu til, að engan getur furðað á, þó að þeir stingi nú við fótum, og
bregði á annað ráð á næsta ári, ef dýrin verða geld eða láta fangi á ný
á komandi vori.
Lóni í Kelduhverfi, 27. dcs. 1911.
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
AI.ÞÝÐLEGT TÍMARIT UM NÁTTIJRUFRÆFU
192 s/ður á ári.
ÚTGEFANDI: HIÐ ÍSI.ENZKA NÁTTÚRUFRÆÐIFÉLAG
Gjaldkeri og afgreiðslumaður:
BIRGIR THORLACIUS
sljórnarráðsfulltrúi, Barónsstíg G3, simi 3783, Reykjavík.
I>cir, sem senda blaðinu ritgerðir, eru beðnir að liafa þær skrifaðar með bleki
eða vélritaðar. Höfundar bcra ábyrgð á efni ritgerða sinna.
()11 bréf varðandi ritið sendist Dr. Sveini Þórðarsyni, Skólastíg 3, Akureyri.