Náttúrufræðingurinn - 1947, Blaðsíða 26
168
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
II. Ný islenzk starartegund: lieiðastör (Carex holosboma DREJ.)
Starirnar eru þær æðri jurtir íslenzkar, sem klæða hlutiallslega
meira svæði en aðrar jurtir hérlendar. Við flæðarmál og á tindum,
sem standa upp úr jöklurn, vaxa starir, og á flestum gróðurlendum
þar á milli. Sumar tegundir eru algengar og vaxa um land alit,
aðrar finnast aðeins í einu ákveðnu gróðurlendi, og enn aðrar liafa
aðeins fundizt á takmörkuðu svæði í einum landshluta. Sumar starir
eru vandgreindar og líkar öðrum, svo að rnenn gera sér ekki grein
fyrir Jreim, liafi þeir ekki veitt Jreim atliygli af einhverjum ástæðum.
Síðustu áratugina hafa líka fundizt lilutfallslega fleiri nýjar starir en
aðrar tegundir æðri jurta hér á landi.
Ein algengasta stör á hálendi er fjallastör (Carex norvegica RETZ.,
áður oft ranglega nefnd C. Halleri eða C. alpina). Fjölbreytni hennar
er töluverð, og við rannsóknir, sem prófessor Aarno Kalela í Helsing-
fors gerði á tegundinni á grundvelli alls, sem til er af henni í söfn-
um á Norðurlöndum, kom í Ijós, að undir sama nafni leyndist auk
Jressarar tegundar önnur tegund og nokkrar deiltegundir. En öll
íslenzk eintök í grasasöfnum erlendis tilheyrðu fjallastörinni í
Jrrengstu merkingu orðsins.
Þar eð okkur var kunnugt um fjölbreytni fjallastararinnar á Norð-
urlöndum, hófum við síðastliðið sumar söfnun á henni frá ýmsum
stöðum. Ef til vill verður síðar uniit að skilja á milli nokkurra af-
brigða innan tegundarinnar hér á landi, því að eintökin eru greini-
lega ólík frá ýmsum stöðum, en þau tilheyra samt öll sömu tegund
og Kalela hafði sagt áður, og sömu deiltegund (Carex noruegica
RETZ. ssp. eu-norvegica LÖVE & LÖVE subsp. nova = Carex nor-
vegica RETZ. s. str. cp. KALF.LA in Ann. Bot. Soc. Zool.-Bot. Fenn.
Vanamo, Tom. 19. N:o 3, 1944).
Nokkur eintök, sem við tókum 13. ágúst á Vaðlaheiði sunnan við
veginn á háheiðinni í Jjeirri trú, að urn venjulega fjallastör væri að
ræða, voru svo frábrugðin öðrum eintökum, þegar nánar var að gætt,
að ekki var hægt að kornast hjá þeinr grun, að hér væri um eitthvað
annað en fjallastör að ræða. Við rannsökuðum eintökin nánar í haust
og bárum þau saman við lýsingar og eintök frá Norðurlöndum. Þá
kom í ljós, að þetta var starartegund, sem ekki Iiafði verið talin til
íslenzkra jurta. Hún ber hið latneska nafn Carex iiolostoma DREJ.,
og á íslenzku mætti kalla hana heiðastör, Jrar eð illa fer á að Jrýða
latneska nafnið beint (holostoma = með heilan munn).