Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1948, Qupperneq 18

Náttúrufræðingurinn - 1948, Qupperneq 18
64 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Að kvöldi þessa dags komu þeir Björn Jóhannesson, Björn Sig- urðsson og Tómas Tiyggvason austur að Næfurholti samkvæmt skilaboðum mínum, og fór ég með þeirn þegar um nóttina í þrjár helztu kolsýrudældirnar. Þeir höfðu með sér tæki til að taka sýnis- horn af lofttegundum, kalsíumhýdroxýð í upplausn og hvítar mýs. Undir eins og lofti úr kolsýrugjótu var blásið niður í upplausnina, varð hún hvítgruggug (af kalsíumkarbónati). Það var sönnun þess, að um kolsýru væri að ræða. Og þegar mús var látin í slíka gjótu eða ósýnilegan poll eða læk, sem rann frá gjótunni, varð hún rænu- laus áður en mínúta var liðin og drapst skömmu síðar (köfnunar- dauða), nema henni væri bjargað. Þessa nótt fékk ég loks ftdlkomna staðfestingu á því, sem ég hafði látið hafa eftir mér um kolsýrutjarnir. í lautinni á Krikabrún var að vísu engin slík tjörn, enda ekki algert logn. í Hólaskógi var ekki heldur kolsýrutjörn, þegar við komum þar fyrst, og ástæðan mun hafa verið hin sarna. En þaðan fórum við inn að Loddavötnum og vorum á að gizka 30—45 mín- útur á leiðinni. Þegar þar kom, var stillilogn. Þunn þokuslæða lá yfir nyrzta vatninu. Við gengum hægt og gætilega ofan liallann austan við vötnin. Pin áður en við kæmumst niður á bakka, voru nef og augu komin á kaf í kolsýru. Við fundum til óþægindanna, sem því fylgir, og hröðuðum okkur upp aftur. Nú var komin kolsýrutjörn yfir öll vötnin og stórt svæði umhverfis þau. Öll liræin, sem þarna lágu enn ógrafin, voru á kafi í henni. Yfirborð hennar var furðu glöggt, hvort sem við þreifuðum eftir því með nefinu eða brennandi kyndli, og virtist alveg lárétt, eins og vatnsflötur. Það lá í 21/£ m hæð yfir vötn- unum. Við áætluðum flatarmál kolsýrutjarnarinnar 2000 m2 og meðaldýpt 2 m. Samkvæmt því höfðu safnazt þarna saman 4000 m3 af kolsýrulofti. Ef hið fullkomna logn, sem er skilyrði fyrir myndun kolsýrutjarn- ar, hefur orðið jafnsnemma við Loddavötn og í Hólaskógi, þá hlýtur allt þetta kolsýruloft að liafa streymt upp úr jörðinni á minna en 45 mínútum. Þetta þykir mér sennilegt, og býst rneira að segja við, að kolsýruútstreymið sé miklu örara en þessu nemur, því að ætla má, að mikill hluti kolsýruloftsins rjúki upp jafnframt því, er tjörnin myndast. T. d. fundu sumir okkar einu sinni, meðan við stóðum þarna við, ofurhægan vindblæ, og á eftir var yfirborð kolsýrulofts- ins greinilega nokkru lægra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.