Náttúrufræðingurinn - 1948, Blaðsíða 36
82
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Mórinn er þurr og þéttur. Algengustu plöntur, sem nú vaxa á
þessum stað eru: mýrastör, hrafnastör, hrafnafífa, klófífa, mýrelft-
ing, língresi, hvftmaðra og brjóstagras.
2. Stœrri-Arskógur, við Skógarhóla
Plöntur: Smákvisti, starir, elftingar, og horblaðka.
Hér eru kvistirnir smáir, enda votlent, en örnefnin sýna, að
liæðirnar umhverfis hafa verið skógi vaxnar. Nú eru þær klæddar
hrísi og lyngi.
5. Krossar
Plöntur: Starir, elftingar, horblaðka og nrosajafni.
Staðurinn er mjög votlendur, og þessar sömu plöntutegundir
eru þar enn aðalgróðurinn.
4. Stóru-Hámundarstaðir, Búðarmýri við Hamarinn
Plöntur: Kvistir, starir, elftingar, horblaðka og mosajafni.
Þarna er þurrlendara en á áður greindum stöðum og kvistirnir
stærri.
5. Stóru-Hámundarstaðir, Syðri-Svörður
Plöntur: Kvistir, starir, elftingar, horblaðka og mura (Potentilla).
— Kvistalögin eru hér tvö.
II. SVARFAÐARDALUR
6. Háls
Plöntur: Kvistir (allt að 17 cm að þvermáli), starir,'elftingar og
horblaðka.
7. Hamar
Plö'ntur: Kvistir, starir, elftingar og horblaðka. — d’vö kvistalög.
III. HRÍSEY
S. Langamýri
Plöntur: Kvistir (allt að 12 cm að þvermáli), starir, elftingar og
horblaðka. — Kvistirnir eru mjög jafnstórir, enda liggur staðurinn
í sæmilegu skjóli fyrir norðanvindum.
Dýr: Oribata sp.