Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1953, Blaðsíða 10

Náttúrufræðingurinn - 1953, Blaðsíða 10
72 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN oddsen svo mjög, að hann hikar ekki við að véfengja tvær merkar samtímaheimildir, af því að þær stangast við eldfjallasögu Thorodd- sens, sem hér byggir á einni heimild meir en tveimur öldum yngri. Mér virðist lítill efi á, hverjum beri hér heldur að trúa, Jóni Espólín, eða þeim Gísla biskupi, Sigurði Skálholtsrektor, Arngrími lærða og Jóni Egilssyni. Orð Sigurðar verða engin fjarstæða, ef Heklugos um miðja 16. öld er það síðasta, sem hann vissi um, því að sjálfur var hann ekki fæddur fyrr en um 1570. Ég tel því næsta öruggt, að Hekla hafi alls ekki gosið 1578, og að Espólín hafi farið eins og höfundi Oddaverjaannáls, að rugla saman landskjálfta á Suðurlandi og Heklu- gosi, þar eð þetta hefur svo oft farið saman. Um Heklugos 1597 leikur enginn efi, þess er m. a. getið af Gisla biskupi, og Oddur Einarsson biskup lýsir því allítarlega í bréfi til séra Böðvars Jónssonar.1 Þetta hefur verið allmikið öskugos og kom- ið úr háhrygg Heklu. Öðru máli gegnir um gos 1619. Heimildarmenn Thoroddsens um það gos eru Björn á Skarðsá og Espólín. Svo segir í Skarðsárannál: „Eldur í Heklufjalli. Sást norður um landið eldurinn um marga daga; síðan kom vindur af landsuðri, og lagði þá norður myrkur og mistur, svo furða þótti að; þetta var á þeim 6 seinustu dögum Juliimán- aðar; heyrðust og skjálftar, item undirgangur. Sandfall kom svo mik- ið í Bárðardal og víðar (að) þar var ekki slegið í viku fyrir sandinum.“2 Lík er frásögn Espólíns.3 En hvað segir samtímaheimildin, annáll Gísla biskups, sem er klerkur í Skálholti, þegar þetta gos verður? Hann seg- ir um árið 1619: „Þann 29. júlí sama ár kom víðs vegar afskaplegt eldgos úr austurfjöllum“ („ex alpis orientalibus“) ,4 Auðsætt er af öðrum stöðum í annál Gísla biskups, að með austurfjöllum á hann við vesturhluta Vatnajökuls, t. d. skrifar hann um gos „í austurfjöll- um við Grímsvötn“ árið 1629.5 Austur þar er því eldstöðva goss- ins 1619 að leita, en ekki í Heklufelli. Hins vegar getur Gísli biskup þess um árið 1627, að „þann 20. júlí, hér um bil sjöttu eða áttundu stundu fyrir hódegi, sáum vér frá Skálholti reyk stíga upp af Heklu- fjalli, eins og sjóðandi laugar eru vanar að þeyta upp gufu.“6 Vart 1) J.S. 422 4to. 2) Ann. 1400-1800 I, bls. 211. 3) Árb. Esp. VI, bls. 6. 4) Annálabrot, bls. 42. — Islandica Vol. X, bls. 22. 5) Annálabrot, bls. 45. 6) Ibid., bls. 44.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.