Náttúrufræðingurinn - 1953, Blaðsíða 40
100
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Endurskoðendur reikninga:
1950—1952
Ársæll Árnason, bókbindari
Ólafur Þórarinsson, verzlunarmaður
Kristján Á. Kristjánsson, kaupmaður (til
vara)
Ritstjórar NáttúrufrœSingsins:
1950—1951
Sigurður Þórarinsson, fil. dr., og
Hermann Einarsson, dr. phil.
1952
Sigurður Þórarinsson, fil. dr.
AfgreiSslumaSur NátturufrœSingsins:
1950—1952
Stefán Stefánsson, verzlunarmaður
Stjórn
MinningarsjóSs Eggerts Ölafssonar:
1950—1952
Pálmi Hannesson, rektor (formaður)
Árni Friðriksson, mag. scient. (ritari)
Guðmundur Kjartansson, mag. scient.
(féhirðir)
Varamenn:
Sigurður H. Pétursson, dr. phil.
Ingólfur Davíðsson, mag. scient.
Aðalfundir
Aðalfundur fyrir árið 1950 var haldinn í 1. kennslustofu Háskólans laugardag-
inn 24. febrúar 1951. Fundinn sátu 11 félagsmenn. Fundarstjóri var kjörinn Finnur
Guðmundsson, dr. rer. nat., og fundarritari Óskar Ingimarsson, stud. art. Kosin var
stjórn fyrir árið 1951, 2 varamenn í stjóm og endurskoðendur reikninga. Rætt var
um útgáfu félagsskýrslunnar og um náttúruvemd.
Aðalfundur fyrir árið 1951 var haldinn í 1. kennslustofu Háskólans laugardag-
inn 9. febrúar 1952. Fundinn sátu 14 félagsmenn. Fundarstjóri var kjörinn dr.
Finnur Guðmundsson, og fundarritari Ólafur Þórarinsson, verzlunarmaður. Kosin
var stjóm fyrir árið 1952, 2 menn í varastjórn og endurskoðendur reikninga. Gerð
var sú breyting á lögum félagsins, að Náttúrufræðingurinn var gerður að félags-
riti. Var félagsgjaldið um leið hækkað úr kr. 10,00 og upp i kr. 40,00 á ári, en
ævifélagsgjaldið úr kr. 100,00 og upp í kr. 800,00. Rætt var um þátttöku félagsins
í gróðursetningu trjáplantna í Heiðmörk.
Vegna lagabreytinganna, sem gerðar voru á þessum fundi, eru lög félagsins með
áorðnum breytingum birt hér á eftir þessari skýrslu.
Aðalfundur fyrir árið 1952 var haldinn í 1. kennslustofu Háskólans laugardag-
inn 14. febrúar 1953. Fundinn sátu 29 félagsmenn. Fundarstjóri var kjörinn dr.
Finnur Guðmundsson og fundarritari Ástvaldur Eydal, fil. lic. Kosnir vom i stjórn
fyrir árið 1953 þeir Sigurður H. Pétursson, Gunnar Árnason, Guðmundur Kjart-
ansson, Ingólfur Davíðsson og Ingimar Óskarsson, allir endurkosnir. Varamenn í
stjórn vom einnig endurkosnir, þeir Gisli Gestsson og Sturla Friðriksson. Endur-
skoðendur reikninga vom sömuleiðis endurkosnir, þeir Ársæll Árnason, Ólafur Þór-
arinsson og Kristján Á. Kristjánsson. Samþykkt var að gjöra Þorstein Kjarval að
heiðursfélaga í tilefni af drengilegum stuðningi við Náttúrufræðinginn.
Samkomur og fræSsluferðir
1950
Félagið gekkst fyrir 8 samkomum í 1. kennslustofu Háskólans. Þar vom þessi
erindi flutt:
2. janúar: Hermann Einarsson, dr. phil.: „Sildarrannsóknir á árinu 1949“.
30. janúar: Sigurður H. Pétursson, dr. phil.: „Visindi og stjórnmál. Erfðakenn-
ing Lysenkos".