Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1953, Síða 12

Náttúrufræðingurinn - 1953, Síða 12
74 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN svo, af miskunnsamri Guðs ráðstöfun, að vér höfum ekki orðið þeirra varir nokkra stund.“ 1 tJr háhrygg Heklu er einnig stórgosið 1693, en um það eru til næg- ar samtímaheimildir, m. a. hréf skrifað af Daða presti, bamsföður Ragnheiðar Brynjólfsdóttur. Þetta bréf er næsta torlesið, og hefur Thoroddsen misskilið sumt í því, svo sem þá er hann segir, að í Þjórs- árdal hafi fallið hraunkúla (bomha) 2 m í ummál. Samkvæmt frásögn Daða var hraunkúlan hálfur faðmur, þ. e. tæpur metri, í ummál.2 Þá er það gosið 1725. Um það skrifar Thoroddsen, að snemma morguns þ. 2. apríl hafi eldur brotizt út bæði úr Heklu sjálfri, svo og norðan og sunnan við hana; hafi eldsúlur sézt úr háhrygg Heklu, og hafi frá Rangárvöllum verið taldir 9—11 eldstólpar í einu.3 Sam- kvæmt þessu ætti þetta gos að teljast til gosa í hinni eiginlegu Heklu. En þetta stangast við samtimaheimildir þær, er Thoroddsen vísar til. Jón prófastur Halldórsson í Hítardal skrifar: „Þann sama morgun komu upp stórir jarðeldar, bæði fyrir norðan og sunnan Heklu, en ekki í henni sjálfri, svo og ofan eftir hrauninu skammt fyrir ofan byggð á Rangárvöllum. Þóttust sumir geta talið 9, aðrir 11 elda uppi í senn á ýmsum stöðum. Vöruðu langt fram á vorið.“4 Og Þorsteinn Magn- ússon sýslumaður, skrifar um Heklu í sýslulýsingu Rangárvallasýslu, að „udi de islandske Annalibus findes opteigned hvorofte den har staaet i brand, siden Kristendommens Indförelse i Landet, neml. Aar 1104. 1157. 1222. 1300. 1341. 1362. 1389. 1558. 1663. 1693. og til sidst 1725 da ilden ikke udkom af det sædvanlige Gab udi Fieldet, men af Röunet, som ligger under Fieldet.“5 I báðum þessum samtíma- heimildum er það beinlínis tekið fram, að gosið hafi ekki verið úr Heklu. Mælifellsannáll, sem einnig er samtímaheimild um þetta gos, getur þess aðeins að „eldur sást upp koma í fjallinu fyrir austan Heklu um páskaleytið“.(i Espólín segir og aðeins: „Brann þá hraunið hjá Heklu“.7 Thoroddsen getur þess og, að samkvæmt Ferðabók Eggerts Ólafs- sonar og Bjarna Pálssonar, en þeir gengu á Heklu 1750, hafi jarð- 1) Annálabrot, bls. 47—48. 2) J.S. 422 4to. 3) Die Gesch. d. isl. Vulk., bls. 155. 4) Ann. 1400-1800, II, bls. 600. 5) Islands Geografiske Beskrivelser. I'jskjs. 221, bls. 164—165. 6) Ann. 1400-1800 I, bls. 632. 7) Árb. Esp. IX, bls. 93.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.