Náttúrufræðingurinn - 1953, Síða 20
82
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
unnið mikilvæg störf í þágu jarðræktar og jurtaiðnðar, t. d. gúmiðn-
aðarins og lyfjaframleiðslunnar. Tilraunastarfseminni í Kew hefur
m. a. tekizt að framleiða og rækta teplöntuafbrigði, sem flutt hefur
verið til Natal og gert terækt þar mjög arðsama. Ennfremur hefur
tekizt í Kew-garðinum eða fyrir hans forgöngu að auka uppskeru-
magn banana í Vestur-Indíum og tóbaks víða um lönd. Nú er unnið
að því meðal annars að finna eða framleiða kakóplöntu, sem henti
vel fyrir Vestur-Indíur.
1 sambandi við hitabeltisgróðurinn í Kew hafa verið reist risastór
gróðurhús. T. d. er pálmahúsið um 20 m hátt og yfir 100 m langt.
Þarna er og kælihús með kuldabeltisgróðri. Sá ég þarna í grjóturð
í kælihúsi jöklasóley, sem undi sjáanlega miklu betur hag sinum þar
en í garðinum í Fífilgerði, en þar hefur hún oftar en einu sinni dóið
út af hita.
Tvær allstórar gróður- og tilraunastöðvar eru í Kew. Eru þar eink-
um aldar upp plöntur af fræi, sem berst garðinum hvaðanæva að úr
heiminum og ekki hefur verið ræktað þar áður.
I Kew-garðinum eru margar tjarnir, smólækir, grjót- og urðarbeð
alþakin klappa- og steinagróðri. Þar eru líka dældir, siki og álar með-
fram Thames-ánni þaktir alls konar vatnagróðri. En mest ber á víð-
um völlum eða grasflötum með óteljandi blómabeðum og trjám eða
trjálundum og trjáröðum. Þarna eru líka kynstur af alls konar runn-
um, og er fegurð rósa- og alparósa-(rhododendron)garðanna dásamleg.
En öllum þessum trjálundum og jurtasöfnum er þannig niðurraðað,
að undrun og aðdáun vekur. Enda er allur Kew-garðurinn skipu-
lagður í fögrum náttúrlegum lystigarðastil.
Ég kom beint frá Kaupmannahöfn til Lundúna og hafði kynnt mér
grasagarðinn í Höfn eftir föngum í nokkra daga og fundizt mikið til
um hann á margan hátt. En fremur varð hann nú smálegur borið
saman við Kew-garðinn.
Af þeim grasagörðum, sem ég hef séð um dagana og kynnzt að
nokkru ráði, væri það helzt grasagarðurinn í Edinborg, sem kæmist
í hálfkvisti við Kew-garðinn. Ekki þó hvað stærð og vísindalegan út-
búnað snertir, heldur miklu fremur vegna fagurrar niðurröðunar og
framúrskarandi hirðingar.
Telja má Kew-garðinn stofnaðar árið 1759, en það ár var grasa-
fræðingurinn William Aiton ráðinn til þess að koma upp svoköll-
uðum Physic Garden eða lækningajurtagarði við Kew-höll. 1 þau
nærfellt 200 ár, sem síðan eru liðin, hefur alltaf verið unnið að því