Náttúrufræðingurinn - 1957, Qupperneq 8
54
NÁTTÚRUFRFÆÐINGURINN
inn meira en metri í þvermál. Það vex á Indlandi, Indlandseyjum
og syðst í Kína. Stundum er berki þess flett af um 2—3 árum áður
en tré eru felld til þess að viðurinn þorni og verði léttari í meðför-
um, því að aðeins þurr tekkviður flýtur á vatni. Venjulega eru trén
feld 40—60 ára gömul. Bolurinn er þá 17—20 m. hár og um metri í
þvermál. — Ástralíu- og Brasilíu-tekktré er viður allt annarra trjá-
tegunda.
Sedrusviður (Cedrus. Ceder) er frægur að fornu og nýju.
Salómon konungur notaði sedrusvið í musterið í Jerúsalem. Þá
uxu miklir sedrusskógar á Libanonfjöllum í Sýrlandi. Rómverjar
notuðu sedrusvið og kölluðu níðsterkt eilífðartré. Föníkíumenn
notuðu sedrusvið til skipasmíða. Nú eru sedrusskógarnir fornu að
mestu eyddir. Sedrustréð er stórvaxið barrtré, sígrænt, en að öðru
leyti dálítið svipað lerki. „Sedrusviður“ sá, er nú er notaður, t. d. í
vindlakassa, plötur, kappróðrarbáta o. fl., er viður annarra barr-
trjáa, t. d. japanskur sedrusviður, sem þykir ágætur, Oregon og
Kanada sedrus, rauður sedrus, sem er einiviður, o. fl. Vindlakassa-
sedrus (Cedreltré eða indverskt mahogny) er lauftré, sem vex í Vest-
ur-Indíum og víðar í heitu löndum Ameríku.
Hinn frægi og dýri smíðaviður mahognyer viður ýmissa hita-
beltistrjátegunda. „Ekta mahogny“ er viður trésins Swietenia ma-
hogny, sem vex í Mið-Ameríku, Mið-Mexikó, Flórída og á Antil-
eyjum. Mahogny-tréð verður allt að 30 metra hátt og bolurinn 2
m í þvermál. Fullvaxið er það ekki fyrr en nær 200 ára gamalt.
Kjarnaviðurinn er harður og þungur, rauðbrúnn að lit, en dökkn-
ar nokkuð með aldrinum. Mahogny er endingargott og þykir óvenju-
lega fallegur viður. Þykja t. d. húsgögn úr maghogny hin fegurstu.
Mahogny er einnig notað í hurðir o. fl. og tekur vel við gljáa. Spán-
verjar notuðu mahogny til skipasmíða, þegar um 1600, en talið er að
farið hafi verið að nota það verulega í Evrópu rúmri öld síðar. Hið
vestræna mahogny er kallað Kúba-mahogny, spanskt mahogny o. fl.
nöfnum. Afríku-mahogny er viður af öðrum skyldum trjám og er
mikil útflutningsvara í Vestur-Afríku. Honduras-mahogny er létt-
ara og gulbrúnna. Til er líka Ástralíu-mahogny, en það eru aðrar
trjátegundir, meðal annars drekatré (Eucalyptus). Til drekatrjánna
telst hávaxnasta tré jarðarinnar (E. amygdalina), sem getur orðið
150 metrar á hæð, eða mun hærra en risafururnar. Timbur dreka-
trjánna fúnar seint og þykir ágætt til skipasmíða, brúarbygginga, í