Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 28

Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 28
74 NÁTTÚRUFRFÆÐINGURINN eins og t. d. hitabeltisskelin Tridacna gigas, er getur orðið 1,2 m að lengd og vegur þá um 225 kg. Það er skiljanlegra en skýra þurfi, að skeldýralífið sé fátæklegra í kaldari höfum heldur en hlýjum og ekki með eins miklum glæsi- brag. Hvað ísland snertir í þessu efni, þá er landgrunnið okkar auð- ugra af skeldýrum en margur kann að ætla.1) Og víst er um það, að hús margra þessarra dýra eru skemmtilega falleg á að líta, og mun ég síðar í grein þessari segja frá ýmsum litprúðum tegundum. Hátt á þriðja hundrað tegundir eru hér við land, sú stærsta allt að 17 cm há, en það er ægisdrekkan (Lima excavata); auk þess eru 23 tegundir skelja og snigla á landi, sumar á þurrlendi, aðrar í mýrum eða tjörnum. Nú kunna menn að spyrja: Á hvern hátt verða dýr þessi mönnun- um til gagns og gleði? Eru þau til annarra nytja en að gerast kvið- fylli vissra fiskitegunda sjávarins? Jú, vissulega. Móðir vor náttúra er hér sem oftar ótrúlega örlát, en því miður kunnum við menn- irnir ekki alltaf að hagnýta okkur þetta örlæti á skynsamlegan hátt. Og þannig er það með skeldýrin. Skulu nú þessi atriði rædd nokkru nánar. Hagnýt þýðing skeldýra getur verið aðallega með þrennum hætti: 1. Sem fæða fyrir menn og skepnur. 2. Til framleiðslu ýmissa iðnaðar- og söluverðmæta. 3. Til margs konar skreytingar og notkunar í daglegu lífi. Flestir, sem komnir eru til vits og ára, hafa heyrt minnst á ostrur. Ostrur teljast til samloknanna; hafa þasr í sumum löndum Norður- álfu verið notaðar til matar um þúsundir ára. í Danmörku hafa t. d. fundizt í hinum svo nefndu Kökkenmöddinger (sorphaugum) mikið af tómum ostruskeljum ásamt kræklingaskeljum og hjarta- skeljum, er geymst hafa frá þeim tímum, er steinaldarþjóð byggði landið. Bendir þetta ótvírætt til þess, að ostran hafi ekki verið svo óalgeng fæða meðal steinaldarmanna. Og sennilegt er, að neyzla hennar hafi aldrei lagzt niður með öllu. Nú er dýr þetta sjálfsagð- ur réttur á borðum, að minnsta kosti í betri veitingahúsum, bæði vestan hafs og austan. Áður fyrr var skelin veidd villt, en nú láta menn sér það ekki nægja, heldur rækta hana í stórum stíl. Um 100 núlifandi tegundir eru til af ostrum, en fæstar þeirra eru 1) Sjá: Ingimar Óskarsson: íslenzkar sæskeljar, Náttúrufr., 22: 1—18.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.