Náttúrufræðingurinn - 1957, Blaðsíða 20
66
NÁTTÚRUFRFÆÐINGURINN
til að taka vatnssýnishorn og mæla liita á ýmsu dýpi. Unnsteinn
Stefánsson efnafræðingur í Fiskideildinni hefur síðar mælt seltu í
vatnssýnishornunum, sem við tókum.
Við renndum lóði í botn aðeins á þessum eina stað og hittum
þegar á 76 m dýpi. Það var nýtt dýptarmet í Jökulsárlóni, eins og
fyrr var sagt.
Á sama stað á 70 m dýpi var vatnshiti 1,8° og selta 12,97%0.
Athugun okkar á 50 m dýpi á sama stað mistókst: Hitamælir-
inn sýndi 0,6°, þegar tækið var dregið upp, en það hafði ekki snú-
izt við, eins og það á að gera, og því er sennilegt, að mælirinn hafi
sýnt of lágt hitastig. Flaskan með vatnssýnishorninu, sem þarna var
tekið, brotnaði í flutningnum suður.
Á sama stað við yfirborð var vatnshiti 0,2° og selta 10,82%o.
í útfalli Jökulsár úr lóninu var hiti 0,35° og selta 10,72%o, hvort
tveggja við yfirborð.
Við vesturbakka Jökulsár á ferjustaðnum mældist selta 10,95%o.
Ekki entist okkur tími til fleiri athugana að þessu sinni. En þeir
Kvískerjabræður hafa fullan hug á að halda áfram dýptar-, hita-
og seltumælingum í Jökulsárlóni, eftir því sem þeim gefst tóm til
á næstu missirum, og forráðamenn Fiskideildar hafa góðfúslega
lánað tæki til slíkra athugana.
Þess skal getið til samanburðar við seltuna í Jökulsárlóni, að i
sjónum undan Suðurlandi er seltan um 35%0. Af því er einsætt, að
h. u. b. þriðjungur af vatni lónsins er sjór. Alls staðar í Eystrasalti,
jafnvel að meðtöldum dönsku Beltunum og Eyrarsundi, er minni
selta (undir 12%0) en í Jökulsárlóni. Þó er þar sjór kallaður. Má
því vel til sanns vegar færa, að Breiðamerkurjökull sé tekinn að
ganga í sjó fram. Að því er menn bezt vita, gerir hann það nú í
fyrsta sinni, eftir að land byggðist, og að öllum líkindum fyrsta
sinni síðan í ísaldarlok.
Á næstliðnum áratugum hefur Breiðamerkurjökull hörfað ein-
ungis af veðurfarslegum ástæðum, og — þótt það kunni að láta í
eyrum sem öfugmæli — leiddi sú hörfun til þess, að hann endar nú
í sjó.
Nú virðist einsætt að nýtilkomin selta og aukin hlýja í Jökuls-
árlóni, vegna samgangs við sjó, muni herða á undanhaldi Breiða-
merkurjökuls. Allar horfur eru á, að áhrif sjávarins fari vaxandi ár
frá ári: Lónið stækkar stöðugt og mun nú nálægt 4,5 km2 að flatar-