Náttúrufræðingurinn - 1957, Síða 43
VARHUGAVERÐAR FRAMFARIR
89
hlaut hið upprunalega brot, eignast afkvæmi saman, koma hinir
herfilegustu vanskapnaðir í ljós og allskyns kvillar verða lífverunni
ungri að aldurtila.
Hvað kemur þetta allt gegnumlýsingu á fótum í skóbúðum eig-
inlega við? hljóta menn að spyrja. Meira en margur heldur. Við
slíka gegnumlýsingu er notað mun meira geislamagn en í japönsku
tilraununum, þótt skemur sé, og ekki aðeins fæturnir heldur og
önnur líffæri ofan við þá verða fyrir sterkum geislunum. Ef til vill
getur þetta ekki valdið sjúkdómum lijá neinum, og roskið fólk
komið af barneignaaldri flytur ekki litþráðabrot til óboxinna ætt-
liða. En gegnumlýsing í skóbúðum er mest notuð af börnum, sem
eiga eftir að skapa nýja ættliði og því flytja hvers konar ættgengar
skemmdir til óborinna kynslóða. Alvarlegii brot munu valda
ófrjóvgi hjá þeim, er fyrir þeim verða, eða vanskapnaði og dauða
strax í næsta ættlið. En lítil brottföll berast frá ættlið til ættliðar
og verða æ algengari unz allir einstaklingar þjóðarinnar hafa hlot-
ið einn brotinn litþráð og óbrotinn jafna lians. Þarf þó enginn galli
að koma í ljós, vegna þess, að heilbrigði litþráðurinn getur valdað
hinn skemmda. En um leið og skyldir einstaklingar með sinn brotna
litþiáðinn hvor giftast, koma gallarnir í ljós, og geta verið fingra-
leysi, fótaleysi, blinda, heyrnarleysi, lélegt hjarta, styttri ævi, og
ótal aðrir ættgengir „sjúkdómar" eða gallar. Skyldragifting hefst
oft í fjórða ættlið, og þar eð allir íslendingar munu skyldir í 15.
lið, getur aldrei dregizt lengur að litþráðaskemmd vegna gegn-
umlýsingar komi í ljós á íslandi. Og jafnvel lítil skemmd getur þá
orðið áhrifaríkari fyrir þjóðina í heild en við getum gert okkur í
hugarlund sem stendur.
Vel má vera, að japanskt liár, sem varð geislavirkt eftir Bikini-
sprengjuna, valdi meiru tjóni á litþi'áðum könguljurtarinnar en
gegnumlýsing í einni skóbúð í Reykjavík getur valdið á íslenzkum
börnum. Samt er enginn efi á, að slík gegnumlýsing getur valdið
meira tjóni á óbornum kynslóðum en gamanið við fótaskoðunina
er vert. Þess vegna væri það viturlegt, ef slíkri gegnumlýsingu yrði
hætt hið bráðasta og aðrar hættuminni aðferðir í nauðsynlegri
samkeppni teknar upp í staðinn.