Náttúrufræðingurinn - 1957, Qupperneq 45
SITT AF HVERJU
91
straumur hennar væri kaldari en loftið ofan hennar. Tvisvar hefur
það verið mælt, mér vitanlega. í hvorugt skiptið reyndist vera um
teljandi mun að ræða.
Dalgolu verður einnig vart í Norðurdal Fljótsdals, en hún dreif-
ist þar og dvínar, þegar kemur út úr þrengslum dalsins.
Líklegt er, að loftstraumar með einkennum Dalgolunnar renni
um þrönga dali norðanlands, sem drög eiga inn til hásléttunnar, en
af því hef ég ekki haft spurnir.
Geta má þess til, hvernig þetta fyrirbæri í vindafari verður: Á
lognkyrrum frostnóttum eftir sólbjartan dag yfir hálendinu hnígur
(sekkur) þyngsta (kaldasta) loftið niður á hálendisgrunninn, safn-
ast fyrir líkt sem vatnslag væri, nær svo framrás um daladrög og
streymir um þau sem vatn.
Halldór Stefánsson.
Skordýr taka framförum.
Ef einhverjir af meindýraeyðum nútímans kynnu að hafa haft
litla trú á þróunarkenningunni, eða þeim hluta hennar, sem kennd-
ur er við Darwin, þá neyðast þeir nú víst til þess að endurskoða af-
stöðu sína. En kenning Darwins um úrval náttúrunnar, og áhrif
þess á eðlisfar tegundanna hefur á síðustu árum gert sig áþreifan-
lega gildandi í baráttu mannsins við skordýrin. Sama hefur átt sér
stað við notkun fúkalyfja gegn vissum sýklum, en það er önnur
saga.
Flugur og ýms önnur skordýr hafa um langan aldur hrjáð bæði
menn og skepnur. Meindýr þessi hafa borið sjúkdóma, eins og
malaríu, gula hitasótt, dílasótt, iðrakvefsóttir o. s. frv., og þau hafa
eyðilagt jurtagróður og etið upp á skömmum tíma matvæli, sem
fæða mætti af heilar þjóðir. í baráttunni gegn þessum ófögnuði
hefur maðurinn leitað ýmissa bragða, en lítt orðið ágengt fyrr
en nú á síðustu áratugum, er efnaiðnaðurinn gat framleitt nægilegt
magn af efnum, er voru skordýrunum eitruð, en mönnunum skað-
lítil eða skaðlaus.
Þekktasta og hentugasta skordýraeitrið, sem framleitt hefur verið
til þessa er DDT. Með hjálp þess hafa verið stígin stór skref í út-
rýmingu skæðra farsótta meðal suðrænna þjóða. T. d. hefur malaríu
verið útrýmt á stórum landsvæðum á þennan hátt. í landbúnaði