Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 13

Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 13
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 5 safni Náttúrufræðistofnunar íslands. Að auki verður svo lítillega getið um frávik eyrarósar í öðrum löndum frá þeirri lýsingu. Eyrarósin hefur fjölæran jarðstöngul sem greinist hvað eftir annað. Upp af honum vaxa uppréttir stönglar, oft margir saman í þyrpingu og iðulega jarðlægir neðantil, en sveigjast svo í boga upp á við. Hæð þeirra er 10—40 sm, meðaltal mælinga á plöntum frá 35 stöðum á landinu var 23 sm. Stönglarnir eru svívalir og fíndúnhærðir og oft með hliðargreinum í blaðöxlunum um og neðan við miðjan stöngul. Laufblöðin eru venjulega stakstæð, en em þó oft svo til eða alveg gagnstæð á neðanverðum stönglinum. Þau eru frekar þykk, blágræn og dúnhærð, einkum á meðan þau eru ung, með örsmáum gisnum tönn- um og mjög ógreinilegu strengjaneti. Blöðin em lensulaga-egglensulaga og stilklaus; lengd þeirra 1,8—6,4 sm, meðaltal 4,4 sm; mesta breidd þeirra 0,4—1,8 sm, meðaltal 1,2 sm. Blómin eru stór og áberandi, 2,8—5,5 sm í þvermál, meðaltal 4,2 sm, stundum ein sér á stöngul- eða greinarenda, en langoftast nokkur saman allt að 8 í klasa, og einnig eru stór, laufblaðkcnnd blöð í klasan- um. Blómhnappurinn drúpir greinilega áður en hann springur út og útsprungið blómið er einnig lotið. Blómið er leggjað, blómleggurinn 0,7—1,5 sm langur; það er yfirsætið, fjórdeilt og oftast dálítið óreglu- legt, þ.e. tvö krónublaðanna mjórri en hin. Þessi óreglulegu blóm eru einmitt ein helzta röksemd þeirra sem vilja kljúfa eyrarósina og nokkrar náskyldar tegundir út úr gömlu ættkvíslinni Eþilobium, dúnurtunum, og telja til sérstakrar æittkvíslar, Chamaenerion. Bikarblöðin eru fjög- ur, dökkblárauð á litinn og lensulaga, lengd þeirra 1,2—2,3 sm, meðal- tal 1,8 sm; mesta breidd þeirra 0,3—0,4 sm, meðaltal 0,33 sm. Krónu- blöðin eru einnig fjögur, fagurrósrauð á litinn, óreglulega sporbaugótt en oftast með sljóum oddi; lengd þeirra 1,5—3,3 sm, meðaltal 2,3 sm; mesta breidd þeirra 1,1—1,9 sm, meðaltal 1,4 sm. Fræflarnir eru 8; frjóhnapparnir gulbrúnir á litinn, 1,5—2,0 mm langir; frjóþræðirnir gulgráir á litinn, allt að 1,5 sm langir. Frævan er aðeins ein en gerð úr fjórum fræblöðum og því fjórrýmd. Stíll hennar er 4—7 mm langur og á honum fjórskipt fræni með mjög niðursveigð- um, gulhvítum, 2—3 mm löngum flipum. Eyrarósin blómgast oftast í júlí. Aldinið er aflangt hýði, rauðgrátt á litinn, alsett myglugráum hárdún; það er 3,8—6,6 sm á lengd, meðaltal 5,2 sm. Við aldinþroskunina lengist blómleggurinn og getur orðið allt að 5 sm langur. Hýðið opnast
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.