Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 58

Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 58
50 NÁTTÚRUFRÆÐINGURI NN Allan þennan tíma var yndislegt veður, oftast logn og sólroðnar nætur og sérstaklega góð skilyrði til myndatöku, enda virtust þeir félagar í sjöunda himni yfir dvöl sinni þama og árangri hennar. Aldrei fyrr höfðu þeir haft náin kynni af förufálkum (Falco percgrinus) við sömu að- stæður. Tvennt var það, sem mér þótti merkilegast af því, sem þeir sögðu mér. Það fyrra, að fálkarnir ólu unga sína að langmestu leyti á skógar- þröstum (redwings). Þeir félagar undruðust hve mikil mergð var af þeim þama, en neðstu hlíðar Hafrafells, að vestan og norðan, eru líka þakktar þéttum skógi. Hitt voru dekurhljóð karlfálkans, þcgar hann kom með bráð til unga sinna. Þessum hljóðum lýsti Mr. Well í bréfi, þar sem hann segir, að þeir hafi ekki minnst þcss að hafa heyrt þau áður. Meðfylgjandi mynd tók hann eitt sinn af kvenfuglinum við hreiðrið. Þessir fálkaungar urðu ekki fleygir, fyiT en um miðjan júlí. Þeir sáust þar í nágrcnni næstu vikur. Að öllum líkum hefur ungamóðirin ekki byrjað að verpa, fyrr en um mánaðamótin apríl maí. í því sam- bandi birtast margar minningamyndir af fálkum við hreiður. Mér hefur fundist — að öðm jöfnu — að þeir fálkaungar, sem kom- ið hafa snemma úr eggi, séu fleiri í hreiðri cn hinir, sem eru seint á ferð. Ætti ég að gera mun á því eftir áratuga kynni, yrði meðaltalið af þeim fyrri, þrír til fjórir ungar í hreiðri, en af hinurn síðari tveir til þrír. Það leiðir aftur á móti hugann að því, að frost séu ekki eins hættuleg eggjum, eins og margir telja. Þetta á jafnt við um fálka og hrafna, sem verpa fugla fyrstir. Þar kemur líka fleira til greina. Eldri fálkar munu áreiðanlega verpa fyrr en þeir, sem verpa í fyrsta og annað sinn. Tel ég vafalítið að oft muni það tveim til þremur vik- um. Tíðarfar mun þarna líka hafa talsverð áhrif eins og greinarhöfund- ur tekur réttilega fram. Þá verður því heldur ekki á móti mælt, að gamlir fálkar hugsa betur um egg sín og unga en hinir. Þeir fyrr- nefndu eru líka ólíkt afkastameiri að afla fæðu handa ungum sínum. A því er reginmunur. Það geta því verið eðlilegar ástæður fyrir því, að ungar í hreiðrum foreldra á fyrstu búskaparárum séu færri en hjá hin- um, sem hafa reynsluna að baki. Ekki veit ég til þess, að nokkurn tíma hafi verið tekin egg undan fálkum né hröfnum í Jökulsárgljúfrum, svo ekki þarf um seinna varp að ræða. Og ekki hef ég heldur orðið var við annað, en kvenfálkinn einn annist útungun eggja sinna, eins og krummi. Marga hrafna hef ég skotið að vorlagi, og aldrei hef ég orðið var við hreiðurblett á karl-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.