Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 73
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
61
Ingólfur Davíðsson:
I Vestureyjum á Breiðafirði
Sumarveðrátta er mild í Breiðafjarðareyjum og koma þar sjaldan
næturfrost. Kartöflurækt er nokkur en var miklu meiri áður og seldu
þá eyjabændur kartöflur, eða létu í skiptum fyrir kjöt og fleiri afurðir
landbænda.
Samúel Eggertsson skrifar árið 1894, að þá hafi garðar í Skáleyjum
verið 391 ferfaðmar. — Fyrir 40 árum voru 5 íbúðarhús í Skáleyjum,
þar af 3 þurrabúðir og bjuggu þar alls 40—50 manns. 30—40 manns
munu þá og hafa átt heima í Hvallátri og svipaður fjöldi í Svefneyjum,
Bjamareyjum og Hergilsey, eða fleiri stundum í Bjamareyjum, cn
færra í Sviðnum. Fjölmennt var þá í Flatey. Nú em varla meir en
10—20 manns í hverri ey, eða jafnvel færra á vetuma. Skáleyjar eru
aðeins nýttar að sumrinu nú orðið en Sviðnur og Hergilsey í eyði. Menn
lifa mest á hlunnindum. Munu fást um 50 kg af hreinsuðum æðardún
úr hverri ey og 80—100 landselskópar. Fjáreign minni en fyrr, 50—
100 ær í ey að jafnaði, og 3—4 kýr og nokkur hænsni. Féð er flutt í
land á vorin. Fangflestar eyjarnar vom lengi eitthvert mesta rnatar-
forðabúr á íslandi og sóttist fólk á fyrri öldum eftir að ráða sig þar í
vist, því að þar þraut aldrei matföng, þó sultur væri annars staðar.
En margt fólk þarf til að nýta að fullu hlunnindin og góðir sjómenn
verða Breiðafjarðareyjabændur að vera. Þar er víða vandratað vegna
grynninga og harðra strauma.
„Mér finnst þetta vera paradís“, sagði ung kona — Reykjavíkur-
stúlka í Svefneyjum. „Eg fer til Reykjavíkur svona tvisvar á ári, en eftir
eina viku fer mér að leiðast þar og flýti mér heim í eyjar aftur“. ■—
Garðbrotin í Skáleyjum hafa nú flest verið sléttuð og gerð að túni. En
enn lifa ömefnin: Erfiður, Latur, Langur, Stóri garður o. s. frv.
Kartöflugarðar eru girtir grjótgörðum úr hellugrjóti. Spretta var góð
í görðum og virtist þar lítið sem ekkert um jurtasjúkdóma. Kálmaðkur
barst þó í einn garð, en sá var þá lagður niður. Gulrófur þrífast vel,
enda mold sums staðar feit af fugladriti.
Mikið er um skarfakál, saxa sumir það saman við skyr eða nota sem