Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1973, Side 108

Náttúrufræðingurinn - 1973, Side 108
96 NÁTTÚRUF RÆ ÐINGURINN áreiðanlega haldiS sig á sömu eyjunni um aldaraðir. Margar þeirra hafa upphaflega verið þær sömu og nú eru á meginlandi álfunnar, en breytzt svo smátt og smátt; þær hafa orðið minni vexti, litur þeirra hefur dökknað, nef og klær orðið öflugra og vængirnir og stélið hafa stytzt. Hér eru nyrztu heimkynni mörgæsarinnar (Spheniscus mendi- culus). Einhvern tíma í fyrndinni hefur hún farið of langt norður á bóginn frá heimkynni sínu, suðurskautslandinu, og ekki tekizt að rata heim til sín aftur. Nú unir hún lífinu vel á Narborougheyju og þarf ekkert að skammast sín fyrir flugfjaðraleysið, því að líkt er á komið með Dúdúskarfinum (Nannopterum harrisi) og henni; á hann heima á sömu eyjunni og er eitt af hinum furðulegu fyrirbrigðum dýralífsins þar. Þeir náttúrufræðingar, sem athugað hafa fuglalíf eyjanna hafa líka undrast það, hve niargir hvítingar eru meðal fuglanna; telja þeir þá hlutfallslega miklu fleiri en annars staðar í heiminum. Hvergi hefur þróun dýra, stig af stigi og náttúruval komið skýrar í Ijós en á Skjaldbökueyjum. Það getur orðið álitamál, hvort Darwin hefði nokkurn tíma skrifað bók sína um uppruna tegundanna, ef hann hefði aldrei kynnzt dýralífinu á eyjum þessum. Eins og fyrr er getið, er risaskjaldbakan ein af einlendum tegundum eyjanna, en fundizt hefur af henni steingerðar skeljar í Chile, og bendir það glöggt á háan aldur þessara eldbrunnu úthafseyja. Á síðari öldum hefur risaskjaldbakan átt hættulega óvini og á það jafnvel enn. Þessir óvinir eru menn og villihundar. Þeir síðarnefndu eru afkomendur hunda, sem einhverjir sjófarendur hafa skilið eftir á eyjun- um. Þeir eru svo grimmir, að þeir geta ráðið niðurlögum fullorðinnar skjaldböku, ef þcir eru hungraðir. íbúar eyjanna hafa ekki til þessa borið mikla virðingu fyrir þessum fágætu dýrum. Þau hafa verið drep- in gengdarlaust. Aðgangsharðastir voru þó hvalveiðimenn, sem komu þarna við og við, svo og landnemar frá Ekvador, sem stunduðu veiðam- ar til að ná sér í hina svonefndu skjaldbökufitu. Risaskjaldbökurnar gefa sem sé af sér verðmæta fitu eða olíu. Menn gengu bara að skjaldbök- unni og klöppuðu á kollinn á henni, svo gæf var hún. En þetta vin- gjamlega klapp mannsins breyttist stundum áður en varði í rétt og slétt rothögg. Það sem bjargað hefur skjaldbökustofninum frá algerri eyðingu er það, hve eyjarnar em erfiðar yfirferðar. Eins og eðlilegt er, hafa margar sagnir orðið til um risaskjaldbökuna, um stærð hennar og útlit, og um ágæti hennar til matar. Sumar þessar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.