Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1977, Page 11

Náttúrufræðingurinn - 1977, Page 11
landi, sem kallað er inni á Ál, innan við Vestmannaeyjar áleiðis á miðin. Kom ég þá auga á stórt fuglager og sigldi að því. Þegar við nálguðumst gerið, sá ég, að bullaði eða kraumaði í því, eins og um stóra síldartorfu væri að ræða. Ég ætlaði að sigla í gegnum torf- una, en sá þá, að sjórinn var dökkur á litinn allt í kring og dauð fiskseiði, sem fuglinn var að gerja í, flutu í yfirborði sjávarins þarna á svæðinu og minnist ég þess að hafa séð a. m. k. einn stóran dauðan fisk á floti. Ég leit á dýptarmælinn og kom mæling- in fram eins og siglt væri yfir bratt- an stand, nteðan siglt var yfir blett- inn, og voru um 20 faðmar niður á topp hans. Fyrst hélt ég, að báturinn mundi stranda og stöðvaði vélina, en þegar báturinn hafði runnið í gegnum kraumið, setti ég á fulla ferð og sigldi í burtu. Sjór var spegilsléttur og veður fag- urt þennan dag. Þetta var, sem kallað er í innbrún- inni á Álnum, rétt austan við nýju vatnsleiðsluna. Tel ég, að þarna eigi engin arða að vera, því ég hefi oft farið þarna um og verið þarna að veiðum og aldrei orðið neinna ntis- hæða var. Dýpi er þarna um 38—40 faðmar. Bogi Finnbogason." Elías Elíasson verkfræðingur hafði frætt mig á jiví — og varð það raunar tilefni þessarar greinar —, að Bogi Iiefði tekið dýptarmælislínuritið og gengið lengi með það á sér og sýnt það ýmsum. Ég bað Boga blessaðan að senda mér það, ef hann hefði það enn, því ekki veit ég það hafa skeð í annan tíma, að slíkt línurit hafi ver- ið tekið yfir gosi á neðansjávar- sprungu, nema ef vera skyldi á jap- anska rannsóknarskipinu Kaiyo-Maru, sem fórst 24. sept. 1952 með 9 vísinda- mönnum og 22 manna áhöfn, og tal- ið er að hafi verið yfir neðansjávar- eldstöðinni Myojin-sho 420 km suður af Tokyo, er mikil gossprenging varð. Ekki tókst nú að finna línuritið, en Bogi hefur sent mér teikningu, sem hann segir gefa mjög góða hugmynd um, hvernig það leit út (2. mynd). Hann segist hafa slegið af, er skyndi- lega snargrynnkaði, og ætlaði að slá luirt í bak, en í sömu andrá var skip- ið komið yfir og setti hann þá á fulla l'erð áfram frá þessu. Hversu langt ])ar var yfir að fara, kvaðst hann ekki vilja fullyrða neitt nema að urn mjög rnjóan hrygg hafi verið að ræða, þó örugglega breiðari en skipslengd. Línuritið af þessum hrygg var allt öðruvísi en af hafsbotninum og alls ekki um þétt efni að ræða, því það grisjaði alls staðar í, og náði þetta niður alla þá dýpt, 80 faðma, sem mælirinn var stilltur á. Ég hef merkt á kort (1. mynd) stað- inn, þar sent þetta skeði. Er staðsetn- ingin samkvæmt nánari upplýsingum Boga, sem man, að Elliðaey bar í Bjarnarey, er liann sigldi yfir þetta, svo og að hann var kominn skammt austur yfir nýju vatnsleiðsluna. Dýp- ið — um 39 faðmar — segir nokkuð nákvæmlega til um íjarlægðina frá landi, en skakkað gæti 100—200 m til eða frá í V—A stefnuna. Staðsetning- in er mjög nærri 63°29'50" n.br. og 20°09'10" v.l. Fjarlægðin til fastalands 5

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.