Náttúrufræðingurinn - 1977, Blaðsíða 65
uff liraun og eldstöðvar í nágrenni
Grindavíkur. Leiðbeinendur voru Jón
Jónsspn og Kristján Sæmundsson. Þátt-
takendur voru 47.
Sunnudaginn 13. júni var farin ferð til
skoða fjörulíf í Blikastaðakró. Leiðbein-
andi var Jónbjörn Pálsson. Þátttakendur
voru 25.
Föstudaginn 25. júni—sunnudags 27.
júní var farin ferð til alhliSa náttúru-
skoðunar á Mývatns- og Kröflusvæðinu.
Flogið var frá Reykjavik til Akureyrar,
þar sem nokkrir þátttakendur bættust í
hópinn, en ekið í bíl þaðan og þangað
aftur og loks flugu þeir sem sunnan úr
Reykjavík komu aftur suður. Gist var í
tjöldum. Fararstjóri var Kristján Sæ-
mundsson sem einnig var leiðbeinandi.
Aðrir leiðbeinendur voru Árni Einarsson
og jóbann Pálsson. Þátttakendur voru
alls um 50.
Sunnudaginn 11. júli var farin ferð til
grasaskoðunar í Botnsdal í Hvalfirði og
gengið að Glym og Hvalvatni. Leiðbein-
andi var Eyþór Einarsson. Þátttakendur
voru 38.
Alls voru þátttakendur í fræðsluferðum
sumarsins jtví 150 og urðu þannig nærri
lielmingi fleiri en sumarið áður.
Ú tgáfustarfsemi
Tímarit félagsins, Náttúrufræðingur-
inn, kom út á árinu eins og verið hefur,
]5. e. tvö tvöföld hefti; út komu seinna
hefti 45. árgangs, 1975, bls. 105—212, og
1.—2. hefti 46. árgangs, 1976, bls. 1 — 110,
eða alls 218 bls. Stefnt er að því að gefa
út fjögur liefti árlega, í samræmi við ein-
dregnar óskir félaga á síðasta aðalfundi.
Nýr ritstjóri tók við stjórn Náttúru-
fræðingsins frá og með þessum árgangi,
Kjartan Thors jarðfræðingur, og þakkar
stjórnin honum vel byrjað starf og vill
ennfremur flytja fráfarandi ritstjóra, Sig-
fúsi A. Schopka fiskifræðingi, þakkir fyrir
lians ritstjórastörf.
Gerðar hafa verið nokkrar breytingar á
Náttúrufræðingnum og er hann nú prent-
aður í tveim dálkum og nýtist því ltver
blaðsiða miklu betur en áður og rúmar
töluvert meira efni, félagar fá þannig
meira lesmál á sama sfðufjölda, Náttúru-
fræðingurinn hefur stækkað.
Leitað hefur verið tilboða í prentun
Náttúrufræðingsins hjá nokkrum prent-
smiðjum í Reykjavík og nágrenni, í sam-
ræmi við samþykkt síðasta aðalfundar.
Að því loknu og að vandlega athuguðu
rnáli var talið hagkvæmast að halda áfram
að skipta við Prentsmiðjuna Odda.
Til að koma ýmsum fréttum af og til-
kynningum um starfsemi félagsins til fé-
laga á ódýrari og hentugri liátt, ákvað
stjórnin að hefja útgáfu á Félagsbréfi s.l.
liaust og kom eitt tölublað út árið 1976.
Sparast með jiessu þó nokkur upphæð ár-
lega, því að burðargjöld fyrir Félagsbréfið
eru miklu lægri en i'yrir bréfspjöld.
Stefán Stefánsson annaðist afgreiðslu
Náttúrufræðingsins og Félagsbréfs, út-
sendingu fundarboða og innheimtu félags-
gjalda árið 1976 af mestu prýði eins og
áður og færir stjórnin honum bestu þakkir
fyrir.
Náttúruvernd
Fulltrúar félagsins á fulltrúafundi
Landverndar í október 1976 voru formað-
ur, Eyþór Einarsson, og Kristbjörn Egils-
son.
Fjárhagur
Árið 1976 voru félaginu veittar kr.
75.000 á fjárlögum til starfsemi sinnar og
hefur sú fjárveiting verið óbreytt allmörg
ár. S.I. haust tókst stjórninni að fá þetta
framlag hækkað um helming, þannig að
á fjárlögum fyrir 1977 eru félaginu veitt-
ar kr. 150.000. Það gefur að skilja að þetta
hrekkur skammt og því eru það félags-
gjöldin fyrst og fremst sem standa undir
útgáfu Náttúrufræðingsins og annari
starfsemi félagsins, auk þess sent liver
greiðir fyrir sig í fræðsluferðum. Félaginu
ríður jtví mjög á að félagar greiði árgjöld
sín reglulega, en allmikill misbrestur er á
að svo sé.
59