Náttúrufræðingurinn - 1977, Blaðsíða 41
inni. Auk þess að finnast við ísland
hefur digurnefur fundist við Færeyjar
og vestan írlands en langnefur virðist
útbreiddari því að hann hefur fund-
ist frá Kanaríeyjum til Skotlands og
íslands auk þess sem hann er einnig
að finna við austurströnd N-Ameríku
frá Chesapeakeflóa til Nýjaskotlands.
Beinfiskar
Af þeim 187 tegundum beinfiska
sem vart liefur orðið á íslandsmiðum
eru eftirtaldar 46 tegundir flækings-
fiskar:
Styrja, Acipenser sturio. Styrja
hefur fundist fjórum sinnum við fs-
land svo að vitað sé. Sú fyrsta fannst
rekin á Langanesströndum árið 1757,
önnur rekin á Núpsstaðafjöru 1793,
sú þriðja fannst rekin í Njarðvíkum
við Faxaflóa 1860 og sú fjórða fékkst
í Faxaflóa árið 1955. Ósennilegt er að
styrja eigi eftir að sjást hér oftar því
að flestar þær ár í Evrópu sem áður
liýstu styrjur eru orðnar mengun að
bráð. Þó mun ennþá vera eitthvað
eftir af styrju í ám í Frakklandi sem
falla til sjávar í Biskayaflóa. Finnst
einnig í Svartahafi, Miðjarðarhafi og
Norðursjó. Hrygnir í ósöltu vatni.
Sardína, Sardina pilchardus.
Sardína hefur aðeins fundist einu
sinni við ísland í júlí 1966 við Grinda-
vík en heimkynni hennar eru annars
í Norðursjó, umhverfis Bretlandseyj-
ar, í Biskayaflóa, við Kanaríeyjar,
Madeira og inn í Miðjarðarhaf.
Augnasíld, Alosa fallax fallax.
Augnasíld hrygnir í ósöltu vatni eins
og styrjan og á heima meðlram
ströndum Evrópu og Afríku frá Mar-
okkó norður til Skandinavíu og inn í
Eystrasalt. Hennar mun fyrst hafa
orðið vart hér við Vestmannaeyjar og
var reyndar dregið í efa að svo væri
en löngu síðar veiddi þýskur togari
nokkrar við Reykjanes.
Suðræni silfurfiskur, Argyro-
pelecus hemigymnus og stóri silf-
urfiskur, Argyropelecus gigas eru
sennilega báðir flækingar á íslands-
miðum. Sá fyrrnel'ndi fannst í febrú-
ar 1964 í vogmeyjarmaga að öllum
líkindum við suður- eða suðvestur-
ströndina en áður hafði orðið vart
við tegundina suður og austur af
landinu. Síðarnefnda tegundin fékkst
undan suðvesturströndinni í rnars
1958. Heimkynni beggja þessara teg-
unda eru víða í austanverðu N-At
lantshafi og víðar og mun suðræni
silfurfiskur vera útbreiddur á 200—
700 m dýpi norður á móts við 60° N,
einnig í vestanverðu Miðjarðarhafi
svo og í Indlands- og Kyrrahafi. Stóri
silfurfiskur er útbreiddur á 400—650
m dýpi i Atlantshafi austanverðu á
milli 25° og 40° N og finnst einnig
í S-Atlantshafi, Mexíkóflóa, Indlands-
og Kyrrahafi sunnanverðu.
Stjarnmeiti, Astronesthes gem-
rnifer fannst hér fyrst í september
1949 suðvestur af Vestmannaeyjum á
450 m dýpi. Heimkynni hans eru í
austanverðu Atlantshafi frá 40° N lil
15° S og í vestanverðu Atlantshafi í
Mexíkóflóa frá 40° N til 35° S.
Broddatanni, Borostomias ant-
arcticus telst til sömu ættar og stjarn-
meiti. Hann veiddist hér í apríl 1965
undan suðvesturlandi (64o07'N-27°
I6'V) en heimkynni hans eru í N-
Atlantshafi norðan 40° N, í Miðjarð-
arhafi, S-Atlantshafi, Indlandshafi og
Kyrrahafi sunnan 40° S.
35