Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1977, Page 44

Náttúrufræðingurinn - 1977, Page 44
lantshafi frá S-Afríku norður lil Noregs og í vestanverðu Atlantshafi frá Ríó de Janeiro til Argentínu. Hingað til Islands flækist brynstirtla stundum og fyrst er hennar getið frá árunum 1835—1840 en þá veiddist ein út af Vestfjörðum. Næst fæst hún hérna sumarið 1941 og þá var mjög mikið um hana allt í kring um land- ið. Síðan hefur hún vitjað landsins af og til. Litli bramafiskur, Taractes asper er Jjekktur hér síðan í septenr- Irer 1870 að hann fannst rekinn í Vest- mannaeyjum. Ekki munu margir hafa fengist síðan. Litli bramafiskur hefur fundist í Atlantshafi frá Madeira til Noregs og íslands og auk Jress í Ind- landshafi og Kyrrahafi. Stóri bramafiskur, fírama brama er mun algengari en sá litli. Hann fékkst hér fyrst í september 1901 rekinn í Selvogi og síðan ltafa nokkrir fundist og flestir reknir. Heimkynni stóra bramafisks eru ann- ars heimshöfin Atlantshaf, Kyrrahaf og Indlandshaf. Hann mun stundum vera alltíður undan ströndum Spánar og Portúgals. Silfurbrami, Pterycornbus brama er þriðja tegundin af Jjessari ætt (bramaætt) sem fundist liefur við Island. Hann fannst hér sumarið 1960 og við Vestmannaeyjar. Silfurbrami er allalgengur við Spán en fiskar hafa fundist einkum reknir við strendur Noregs og Norðursjávar. Baulfiskur, Argyrosornus regius á heima í Miðjarðarhafi og í Atlants- hafi við strendur V-Afríku og Evrópu norður að Ermarsundi og flækingar finnast í Norðursjó, við sunnanverð- an Noreg og Svíþjóð og einn fiskur hefur fundist dauður á reki í Reykja- víkurhöfn árið 1923. Hefur hann sennilega drepist úr kulda og leiðind- um hér norðurfrá svo langt frá sinni æskuslóð. Kólguflekkur, Pagellus bogar- aveo á heima í Miðjarðarhafi og At- lantshafi frá Marokkó, Madeira, Asór- eyjum og Ríó de Óró norður til Biskayaflóa og flækist síðan allt til Orkneyja, Noregs, Svíþjóðar og ís- lands þar sem hans varð vart við Vest- mannaeyjar árið 1961 og síðan aftur 1964. Nasi, Nesiarchus nasutus fannst í september 1952 í Berufjarðarál en hann helur fundist í austanverðu At- lantshafi frá Kanaríeyjum til írlands og Íslands-Færeyjahryggsins og í vest- anverðu Atlantshafi frá Nýjaskotlandi til Bermúdaeyja. Stinglax, Aphanopus carbo á heima í Atlantshafi við Madeira þar sem hann er algengur og nytjafiskur, við Spán og Portúgal og flækist með- fram ströndum Englands og Skotlands til Noregs og Islands allt norður í Grænlandshaf. Hér fannst hann fyrst rekinn í Vestmannaeyjahöfn í sept- ember 1904 og var talið að um nýja tegund væri að ræða en síðar kom í ljós að svo var eigi. Silfurbendill, Benthodesmus elongalus simonyi finnst beggja vegna Atlantshafsins að austan frá Kanarí- eyjum og Madeira, og Portúgal það- an senr hann flækist meðfram land- grunnsbrúnunum til Noregs og Is- lands. I vestanverðu Atlantshafi finnst hann frá Nýl’undnalandi til Bermúda- eyja. (Atlants)marbendill, Lepi- dopus caudatus fannst hér í löngu- 38

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.