Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 46
slétthverfu eru í Svartahafi, Miðjarð-
arhafi og meðfram ströndum V-Ev-
rópu norður til 64°.
Dvalfiskur, Remora rernora á
að hafa sést hér fyrr á öldum. Sam-
kvæntt annálum eiga 4 fiskar (dval-
fiskar?) að hafa fundist fastir á há-
meri sem veiddist við Engey og danski
dýrafræðingurinn Steenstrup fékk
nokkra fiska þessarar tegundar þegar
liann var hér árið 1840. Höfðu þeir
setið á kaupskipi í nánd við ísland.
Síðan hefur þeirra ekki orðið vart
hér. Dvalfiskurinn er þekktur l'yrir að
setja sig fastan á háfiska o. fl. dýr
sjávar — einnig skip — og láta berast
með þeim um höfin. Festir hann sig
með hjálp ummyndaðs bakugga sem
myndar sogskál. Heimkynni dvalfisks
eru í austanverðu Atlantshafi hlýrri
hlutum jiess og Miðjarðarhafi.
Tunglfiskur, Mola rnola hefur
nokkrum sinnum heimsótt íslandsmið
fyrst var eftir honum lekið árið 1845
er hann fannst rekinn í Fljótum.
Heimkynni hans eru í Miðjarðarhafi
og lilýrri hlutum heimshafanna.
Hann liefur fundist alll frá Madeira
og Asóreyjum norður til Skandinavíu
og íslands.
Þá eru taldir Jjeir beinfiskar sem
nokkurn veginn má telja öruggt að
séu flækingar á íslandsmiðum en eftir-
farandi 14 fisktegundir eru annað-
hvort flækingsfiskar eða ekki:
Mararangi, Holtbyrnia pro-
blernatica, n j a r ð a r a n g i, Maulisia
mauli, sæangi, Normichthys oper-
osus, ægisstirnir, Cyclothone rni-
crodon, pokakjaftur, Saccophar-
ynx sp., gapaldur, Eurypharynx
pelecanoides, h a f á 11, Conger conger,
stóra sænál, Entelurus aequoreus,
silfurkóð, Gadiculus argenteus
thori, fjólumóri, Antirnora rostra-
ta, mórubróðir, Laemonerna lati-
frons, síldakóngur, Regalecus
glesne, s n í k i r, Echiodon drurn-
rnondi, sandhverfa, Psetta rnax-
ima.
Um Jiær þrjár tegundir fiska af
angaætt, mararanga, njarðaranga og
sæanga, er ennþá Jntð lítið vitað um
útbreiðslu á að ekki er mögulegt að
segja til um hvort Jieir eru hér flæk-
ingar eða ekki. Allir hafa Jjeir fundist
í Biskayaflóa, sæangi auk Jjess við
Kanaríeyjar og í Rósagarðinum suð-
austan íslands Jjar sem hann veiddist
í ágúst 1950, njarðarangi hefur feng-
40