Náttúrufræðingurinn - 1977, Page 57
Nokkrar nýjar alcLursákvarðanir
Hér verður skýrt frá nokkrum nýj-
um aldursákvörðunum, sem þó í
mörgum tilfellum eru bráðabirgða-
niðurstöður.
Jarðfræðikortlagningu sumra svæða,
sem sýnd eru á 1. mynd, er ekki lokið
og því varhugavert að draga of niikl-
ar ályktanir af þessum niðurstöðum.
Einnig má sjálfsagt telja, að ákvarð-
anirnar þurfi að endurtaka til stað-
festingar. Niðurstöðurnar eru birtar
í töflu I. Meðal þeirra er ákvörðun
á súru bergi úr Lónafirði í Jökull jörð-
uin (LÓF), sem sýnir aldurinn 12,6
milljónir ára. Þorleifur Einarsson
jarðfræðingur tók þetta sýni alveg
niðri við sjávarmál. Eins og að ofan
segir, er jarðfræðikortlagningu jtessa
svæðis ekki lokið og því ekki hægt að
fullyrða, hvort hér sé um að ræða eitt
elsta berg í Lónafirði eða yngra inn-
skot. Ennfremur styður smásjárathug-
un sýnisins að hér sé um að ræða al-
geran lágmarksaldur, og frekari rann-
sóknir þarf að gera, áður en eitthvað
endanlegt er hægt að segja.
Frá Snæfellsnesi eru m. a. ákvarð-
anir frá Breiðuvík, en súrt berg, sem
Sigurður Steinþórsson jarðfræðingur
tók þar, gefur aldur 3,76 ± 0,14 mill-
jónir ára. Annað súrt sýni frá granó-
fýrinnskotinu við Laxá á Fróðárheiði
gefur aldur sem tölulega séð er sá
sami og á Breiðuvíkursýninu, eða
3,98 ± 0,12 milljónir ára. Að mati
Sigurðar Steinþórssonar er einnig um
að ræða tengsl milli þessara tveggja
innskota, svo segja má, að þessar nið-
urstöður styðji hvor aðra, enda jsótt
þær hafi ekki verið staðfestar enn
með endurtekningu.
Sýni af súru bergi sem var tekið
ofarlega úr Drápuhlíðarfjalli er und-
ir sömu sök selt og ofangreind sýni,
að ekki hefur enn verið aflað staðfest-
ingar á niðurstöðu jtess, en rök má
leiða að Jjví, að aldurinn 3,51 rnill-
jónir ára sé ekki fjarri lagi. Er hér
um talsverða yngingu fjallsins að
ræða miðað við jtað sem áður var
talið.
Endurslioðun nokkurra eldri
niðurstaðna
í grein, sem kom út árið 1968 eftir
þá Moorbath, Harald Sigurðsson og
Goodwin, gréindu þeir frá aldurs-
TAFLA I
Geislavirkt
Sýni Ar. (mm3/g 10-4) Atm. Ar40% k2o% Þungi sýnis (g) Aldur í millj. ára
LÓF 10.214 18.60 2.44 ± 0.049 10.0925 12.62 ± 0.56
Breiðavík 4.642 85.73 3.73 ± 0.007 5.3361 3.76 ± 0.14
I.axá 5.961 83.42 4,52 ± 0.027 0.5800 3.98 ± 0.12
Drápuhlíðarfjall 3.157 91.99 2.72 ± 0.035 0.4734 3.51 ± 0.21
Klofnunarstuðlar: = 4.72 • ÍO-™; Xe = 0.584 • 10-i». K-to/Khl.ildlir r=
1.19- 10-4
Óvissufrávik aldurs eru 2cr.
51