Náttúrufræðingurinn - 1992, Side 15
Ævar Petersen
Þráðskeggur, ný fisktegund
á Islandsmiðum
Eitt af hlutverkum Náttúrufræði-
stofnunar íslands er að halda til haga
upplýsingum um nýjungar í dýraríki
landsins. Það felst meðal annars í því
að varðveita eins fjölbreytt safn af nátt-
úrugripum og unnt er og skrá margvís-
legar athuganir. Þessi gögn nýtast svo
bæði lil rannsókna og sýninga.
Stöðugt bætast nýir gripir í safn
stofnunarinnar og við og við berast
safninu dýr sem hefur aldrei áður ver-
ið getið hérlendis. Árið 1991 sendi Ari
Guðjónsson, eins og svo oft áður,
Náttúrufræðistofnun marga torkenni-
lega fiska af ýmsum tegundum. Flesta
var unnt að greina til tegundar nokk-
uð auðveldlega en tveir reyndust tor-
veldari viðfangs, báðir af sömu teg-
und. Þeirra er ekki getið í annars
ágætri fiskabók Gunnars Jónssonar
(1983) og því þurfti að leita til er-
lendra rita. Eftir nokkra skoðun kom
í ljós að fiskarnir tilheyrðu tegundinni
Melanostomias bartonbeani Parr,
1927, sem Gunnar hefur gefið nafnið
þráðskeggur.
Fiskarnir veiddust á um 280 faðma
(512 m) dýpi 22. október 1991, djúpt
út af Berufirði á Austurlandi. Staður-
inn er 64°00’N og 12°30’V, sem er á ís-
lands-Færeyjahryggnum, milli Rósa-
garðsins og Hvalbaksgrunns. Veiði-
skip var Sunnutindur SU 59. Fiskarnir
eru um 28 cm og 25 crn á lengd og
með þeim stærstu sem fundist hafa af
þessarri tegund (Gibbs 1984).
Þráðskeggur er dæmigerður djúp-
sjávarfiskur í útliti, svartur á skinn (og
roðlaus), með misstórar, ógnvekjandi
tennur og Ijósfæri víða um búkinn (1.
mynd). Ljósfærin liggja í tveimur sam-
hliða röðum eftir búknum endilöng-
um og á hausnum eru einnig blettir
sem gefa frá sér Ijós. Allar tegundir
ættarinnar eru með hökuþráð sem er
ákaflega mismunandi að gerð. Hann
er eitt af þýðingarmestu einkennum
við greiningu fiskanna til tegundar.
Heiti ættarinnar sem fiskarnir heyra
til, Melanostomiidae, er dregið af
ættkvíslarnafni þráðskeggs. Ættin
skiptist annars í fimmtán ættkvíslir, en
þar af eru ellefu með um 30 tegund-
um í Norðaustur-Atlantshafi norðan
Kanaríeyja (Gibbs 1984). Þetta eru
allt djúpsjávarfiskar, sem halda sig
vanalega neðan við 500 m dýpi á dag-
inn en færa sig ofar í sjónum á nótt-
unni, allt upp undir yfirborð. Yfirleitt
er lítið vitað um lifnaðarhætti þessara
fiska, en flestar tegundir munu lifa á
tiltölulega stórum fiskum, sumar á
krabbadýrum. Tvær tegundir ættar-
innar aðrar en þráðskeggur hafa fund-
ist við Island, kolskeggur Trigono-
lampa miriceps Regan & Trewavas,
1930 og klumbuskeggur Chirostomias
pliopterus Regan & Trewavas, 1930
(Gunnar Jónsson, munnl. uppl.).
í austanverðu Norður-Átlantshafi
lifa flestar tegundirnar frekar sunnar-
lega, undan Afríkuströndum og allt
norður til Iberíuskaga, einstaka teg-
undir norður undir Bretlandseyjar.
Utbreiðsla tegundanna kann að reyn-
ast víðtækari en nú er þekkt vegna
Náttúrufræðingurinn 61 (2), bls. 93-94, 1992.
93