Náttúrufræðingurinn - 1992, Blaðsíða 63
Ritfregn
FUGLAR Á ÍSLANDI OG ÖÐRUM
EYJUM í NORÐUR ATLANTSHAFI.
Útgefandi: Skjaldborg hf., 1991.
Verð (í júní 1992): 2600 kr.
Stærð: 200x130x20 mm.
Þyngd: 515 g.
í júní 1991 kom út handbók um
fugla, eftir Færeyinginn Dorote Bloch
og Danann S0ren S0rensen, í þýðingu
Erlings Ólafssonar. Teikningar eru
eftir Steen Langvad. í henni er fjallað
um alla varpfugla, fargesti og marga
flækingsfugla á íslandi, í Færeyjum, á
Hjaltlandi, Orkneyjum og Suðureyj-
um undan Skotlandsströndum. Bókin
er í flokki handbóka, eða svokallaðra
vasabóka. í henni eru allmargar Ijós-
myndir og töflur, nokkur útbreiðslu-
kort, auk teikninga af um 230 tegund-
um fugla.
Þetta er nútímaleg bók og henni
svipar til margra erlendra fuglabóka
sem gefnar hafa verið út á síðustu ár-
um hvað uppsetningu varðar. Hún
skiptist í þrennt. í fyrsta hlutanum
(um 50 bls.) er rætt um kjörlendi
fugla, útbreiðslu, farflug, tegundir og
deilitegundir, greiningu og margt
fleira. Einnig eru sérstakir kaflar um
hvert land (hverja eyju) fyrir sig. í
öðrum kaflanum (105 bls.) er lýsing á
um 180 tegundum fugla sem verpa á
svæðinu eða eru fargestir eða algengir
flækingar. Rætt er um einkenni þeirra
(greiningu) og dreifingu (varpstöðvar,
farleiðir og vetrarstöðvar). í þriðja
kaflanum (89 bls.) eru teikningar af
ofangreindum tegundum auk all-
margra flækingsfugla sem ekki er rætt
um í öðrum kafla. Þessar myndasíður
Fuglar á Islandi
og öðrum eyjum í Norður Atlantshafi
HANDBÓK
Soren Sorensen
Dorete Bloch
Teikningar: Steen Langvad
eru í hefðbundnum stíl, teikningar á
hægri síðu hverrar opnu og stutt
hnitmiðuð lýsing á hverri tegund á
vinstri síðu, ásamt upplýsingum um á
hvaða eyjum þeir verpa. Útbreiðslu-
kort eru engin í þessum kafla. Aftast í
bókinni er listi yfir allar tegundir sem
sést hafa á viðkomandi svæði á þessari
öld (til og með 1988) og hvar þeirra
hefur orðið vart.
Við lestur fyrsta og annars kafla
bókarinnar kemur strax í ljós að hún
er þýdd, enda er annar höfundurinn
færeyskur og víða Ijallað um fuglana
frá því sjónarmiði. Þetta kemur þó
mjög lítið að sök, enda lítill munur á
Náttúrufræðingurinn 61 (2), bls. 141-142, 1992.
141