Náttúrufræðingurinn - 1992, Blaðsíða 42
göngum sem eykur stórlega alla
möguleika á samskiptum milli byggð-
arlaga á svæðinu.
HEIMILDIR
Einar Ólafur Sveinsson 1944. íslenskar
þjóðsögur og ævintýri. Leiftur, Reykja-
vík. 502 bls.
Hjörtur E. Þórarinsson 1973. Árbók
Ferðafélags íslands 1973. Svarfaðar-
dalur og gönguleiðir um fjöllin. 184
bls.
Hreinn Haraldsson 1985. Jarðgöng í Ólafs-
fjarðarmúla. Vegamál 8. 6-7.
Hreinn Haraldsson 1991. Road tunnels in
Iceland. I Tunnelling symposium in
connection with ITA executive council
meeting in Reykjavik. 14 bls.
Hreinn Haraldsson og Björn A. Harðar-
son 1992. Jarðgöng i Ólafsfjarðarmúla.
Árbók VFÍ1990/91. 242-254.
Sveinn Björnsson 1984. Jarðfræði Ólafs-
fjarðarmúla og jarðfræðilegar aðstæður
við jarðgangagerð. Vegagerð ríkisins.
64 bls.
Náttúruverndarmerki 1992
Náttúruverndarráð hefur nú gefið
út náttúruverndarmerki í annað sinn
og var útgáfudagur þess 5. júní 1992.
Myndin á merkinu, sem nefnist Vor í
Æðey, er vatnslitamynd eftir Jón
Baldur Hlíðberg. Náttúruverndar-
merkin eru aukamerki en ekki póst-
burðarmerki og eru því fyrst og fremst
safngripir.
Náttúruverndarráð sér um sölu
merkisins og rennur allur ágóði af út-
gáfunni til Friðlýsingarsjóðs, en til-
gangur hans er að styrkja sérstök
verkefni í íslenskri náttúruvernd. Um
er að ræða stök merki, örk með 8
merkjum og eftirprentanir af frum-
myndinni í stærðinni 165 x 229 mm.
Fyrsta íslenska náttúruverndar-
merkið kom út á síðasta ári, í sam-
vinnu við bandaríska fyrirtækið Gris-
ham’s Art, sem hefur langa reynslu af
slíkri starfsemi og mun selja nýja
merkið í Bandaríkjunum fyrir hönd
Náttúruverndarráðs.
Náttúruverndarmerkið frá í fyrra,
ásamt myndinni, verður til sölu út
ágústmánuð en þá verður óseldu upp-
lagi væntanlega eytt. Myndir af þessu
tagi hafa hækkað mjög í verði með ár-
unum og þess munu dæmi vestanhafs
að verðgildi þeirra hafi hækkað allt að
150-falt á 15 árum.
Náttúruverndarráð
120