Náttúrufræðingurinn - 1992, Blaðsíða 60
1. mynd. Skálamælifell við Krísuvíkurveg austan Grindavíkur. Fellið er að mestu leyti úr
móbergi en hraunlög sjást ofantil. Pað nær um 150 m upp yfir hraun frá nútíma, sem eru
fremst á myndinni. Skálamœlifell hill, site of lava flows recorcling a geomagnetic ex-
cursion 42 thousand years ago. Ljósm. photo Leó Kristjánsson.
Vatnsfelli, Bratthálskróki, Langa-
hrygg og Höfða og nú nýverið í Ein-
búa, smáhæð undir Fagradalsfjalli.
Þau eru öll nokkuð ólivínrík og svipuð
að gerð og hafa líklega myndast í
stuttri goshrinu á tveim sprungurein-
um.
Aldursgreiningar á hraunum frá
Skálamælifelli og úr fellunum í kring
voru framkvæmdar bæði við haffræði-
deild ríkisháskóla Oregon í Corvallis
og við sérstaka stofnun franska vís-
indaráðsins í Gif við París, sem sér-
hæfð er í mælingum á daufri geisla-
virkni. Bar niðurstöðunum þokkalega
vel saman í ljósi þess að mælingar á
svo ungu og kalíumsnauðu bergi eru
mjög vandasamar.
Meðalaldur reyndist vera um 42 ±
5 þúsund ár. Levi o.fl. (1990) telja að
hér sé um að ræða sömu segulsviðs-
óreglu og varðveist hefur í fáeinum
hraunum sunnan til í Frakklandi. Af-
brigðilegri segulstefnu í þeim hraun-
um sem kennd eru við örnefnin La-
schamp og Olby var fyrst lýst 1967.
Aldur þeirra hefur verið mældur með
ýmsum aðferðum og reynist vera sá
sami og Skálamælifells, innan
skekkjumarka. Nýlokið er einnig
merkum rannsóknum á 25-50 þúsund
ára gömlu gosbergi við Auckland-
borg á Nýja-Sjálandi þar sem mjög
sambærilegar segulstefnur koma fyrir
(Shibuya o.fl. 1992).
Er hér því um að ræða forvitnilega
nýjung í kortlagningu jarðmyndana
frá síðasta hluta ísaldar hérlendis.
Ekki aðeins hefur tekist að rekja
þannig ósamfelld jarðlög sama aldurs
um 10 km veg, heldur hafa þau einnig
verið tengd við hraun sem eru þús-
undir kílómetra í burtu.
A ýmsum öðrum svæðum í heimin-
138