Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1992, Side 33

Náttúrufræðingurinn - 1992, Side 33
Hreinn Haraldsson Jarðgöng og jarðfræði í Ólafsfjarðarmúla FORSAGA Veturinn 1980-81 óskaði samgöngu- ráðuneytið eftir því við Vegagerð rík- isins að hún léti gera áætlun um fram- kvæmdir til að draga sem mest úr hættu fyrir vegfarendur á hinum svo- nefndu Ó-vegum. Það samheiti var notað um vegina um Ólafsvíkurenni, Óshlíð og Ólafsfjarðarmúla, en þeir fóru allir um skriður og kletta og lágu undir áföllum vegna snjóflóða, skriðu- falla og grjóthruns. Þó að þessir vegir hafi þannig verið settir undir einn hatt, voru aðstæður nokkuð breytileg- ar. Vegir um Ólafsvíkurenni og Ós- hlíð liggja lágt og snjóþyngsli á þeim ekki ýkja mikil en slysatíðnin var há. Vegurinn um Ólafsfjarðarmúla var opnaður fyrir umferð árið 1965 en fram til þess tíma hafði einungis verið bílvegur til Ólafsfjarðar um Lágheiði úr Fljótum. Ólafsfjarðarmúli, eða Múlinn eins og hann er gjarnan nefnd- ur í daglegu tali, eða Vámúli eins og hann hét til forna, er fjallsrani sem gengur fram í sjó milli Ólafsfjarðar og Eyjafjarðar. Hann er víðast mjög sæbrattur og á löngum köflum er 100- 200 metra þverhnípi upp af fjörunni. Vegurinn um Múlann liggur á löngum kafla á syllu í bjarginu, hæst í um 260 m yfir sjó, og er þar lóðrétt bjarg nið- ur í fjöru (1. mynd). Vegurinn var að jafnaði lokaður rúmlega einn mánuð á ári af völdum snjóa, og eru þá einung- is taldir með heilir dagar. Við þetta bættist álíka langur tími með lokun hluta úr degi vegna snjóa, snjóflóða eða grjóthruns. Slysatíðni var nálægt meðallagi miðað við aðra þjóðvegi, en í því sambandi ber að hafa í huga að vegurinn var oft lokaður af snjó þegar hætta var mest. Árið 1981 gerði Vegagerð ríkisins áætlun um hvernig draga mætti sem mest úr hættu fyrir vegfarendur. Þrjár lausnir voru athugaðar. Þær voru veg- ur um Drangsskarð, en það er skarð á milli Karlsárdals og Bustarbrekkudals þar sem fyrrum var ein af þjóðleiðum ferðamanna milli Ólafsfjarðar og sveita Eyjafjarðar, vegþekjur yfir hættulega staði á veginum í Ólafs- fjarðarmúla, og jarðgöng. Niðurstað- an varð sú að með tilliti til kostnaðar og öryggis vegfarenda var mælt með gerð jarðganga gegnum Múlann. í upphafi var athugaður kostnaður við ýmsar jarðgangaleiðir, allt frá 1,6 til 4,2 km að lengd. Eftir fyrstu athug- anir varð þó ljóst að ekki var unnt að leysa vandann að neinu gagni með styttri göngum en 2,5 km. Göng sem væru um eða yfir 4 km yrðu óhóflega dýr miðað við ávinninginn og var því stefnt að 2,5-3,5 km löngum göngum. Náttúrufræðingurinn 61 (2), bls. 111-120, 1992. 111

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.