Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 26
1. mynd. Rœktunaraðferðir viðfasta hengi-
rækt á skelfiski. a) stólparœkt, einstakir
stólpar notaðir, b) stólparækt, stólpar
hafa verið tengdir saman, c) grindarrækt.
2. mynd. Ræktunaraðferðir við fljótandi
hengirœkt á skelfiski. a) flekarœkt, b) linu-
rœkt.
Kuðungar
9% Hömudiskur
Kræklingur
40%
3. mynd. Skipting heimsframleiðslu skel-
fisks árið 1991 (3.223.000 tonn) eftir
ættum (FAO 1993).
dýrin uppi í sjó (hengirækt) þar sem meira
er um orkuríka fæðu (svifþörunga) en á
sjávarbotni.
Ýmsar útfærslur af hengirækt hafa þró-
ast gegnum tíðina og er þar greint á milli
fastrar og fljótandi ræktar.
Föst HENGIRÆKT
Af fastri hengirækt er stólparækt algeng-
ust. Hún er hin upprunalega aðferð við
kræklingseldi og enn mikið notuð í Frakk-
landi. Lirfum er safnað á reipi sem síðan er
vafíð um stólpa og skelfískurinn látinn
vaxa þar áfram þar til markaðsstærð er náð
(1. mynd a).
í öðrum tilfellum eru stólpamir bundnir
saman með reipi eða timbri er virkar sem
lirfusafnarar og síðan sem uppvaxtarstaður
fyrir kræklinginn (1. mynd b).
Þriðja aðferðin í fastri hengirækt er
grindarrækt, þar sem grind er komið fyrir
úti í sjó en undir henni hanga reipi sem
ræktunin fer fram á. I öðmm tilfellum er
netsokkum með skeljum komið fyrir undir
grindinni (1. mynd c). Þessi aðferð er
notuð við kræklingsrækt í Asíu og ostru-
rækt í Japan, Kóreu og Frakklandi.
Fljótandi hengirækt
I fljótandi hengirækt er hægt að rækta
skelfískinn á dýpra vatni en í föstu rækt-
inni og hefur þessi aðferð því orðið æ
algengari. Ræktun á reipum eða í netsokk-
um sem festir hafa verið undir timburfleka
er algeng aðferð við kræklingseldi á Spáni,
við ostraeldi í Japan, Kóreu og Frakklandi
og við hörpudiskeldi í Japan (2. mynd a).
Línurækt, sem er nýjasta aðferðin í skel-
fiskeldi, samanstendur af burðarlínu sem
haldið er uppi af baujum. Undir burðar-
línuna eru hengd ræktunarbúr eða reipi,
eftir því hvaða tegund á að rækta (2. mynd
b). Þetta er eina aðferðin við hörpudisk-
rækt, fyrir utan botnrækt, og er þar skelj-
unum komið fyrir í búrum sem hanga
undir burðarlínunni. Línurækt er einnig
algeng við ræktun á kræklingi og ostram.
Við kræklingsrækt eru notuð reipi eða net-
sokkar undir kræklinginn en við ostra-
ræktina era notuð búr eða bakkar.
188