Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 54

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 54
m o R9 1 l BB | OÆ j®|_| H: Heklugjóska K: Kötlugjóska R: Reykjanesgjóska LNL: Landnámslag YS: Yngra Stampahraun 4. mynd. Gjóskulagasnið á Reykjanesi (sjá síaði á 1. mynd). - Three soil sections on Reykjanes (see fig. 1 for exact locations). gígunum virðist hafa verið nokkuð í samræmi við stærð þeirra. Hawaiísk. gosvirkni Af ummerkjum má ætla að svonefnd hawaiísk gosvirkni hafi verið ráðandi þegar Yngra-Stampahraunið myndaðist. Einkennist hún af kvikustrókavirkni og klepramyndun. Hæð kvikustróka í slíkum gosum er jafnan minni en 300 m (Walker 1973). Af stærð og byggingu gíga Yngri- Stampagígaraðarinnar má ráða að kviku- strókamir hafi verið mjög misháir, lágir um miðhluta hennar en hæstir til beggja enda, þar sem stærstu gígamir em. Rann- sóknir á rennslisháttum hrauna á Hawaii benda til að helluhraun myndist helst þegar hraunframleiðslan er lítil, minni en 5-10 m3/sek, og að sá þáttur ráði mestu um hvort helluhraun eða apalhraun mynd- ist (Rowland og Walker 1990). Sem dæmi má nefna að sé gert ráð fyrir að hraun- rennslið frá Yngri-Stampagígaröðinni hafí að jafnaði verið 50 mVsek hefur það myndast á u.þ.b. ljórum dögum. 1 þessu dæmi eru margir óvissuþættir og er því einungis ætlað að gefa hugmynd um mögulegan myndunartíma. Helluhraun Yngra-Stampahraunið flokkast sem hellu- hraun (3. mynd). Víðast hvar er það tiltölulega slétt og greitt yfírferðar, eink- um nærri gígunum, en er þó allúfíð sums staðar, sérstaklega á þeim svæðum sem fjærst liggja gígaröðinni. Má þar sjá ýmiss konar fellingar og múga sem myndast hafa á yfirborði hraunsins. Næst gígunum hefur hraunið að mestu runnið um lokaðar rásir eða pípur sem víða mynda margbrotin kerfí. Einkum er þetta áberandi við Stamp- ana nyrst á gígaröðinni. Eldvörpin á gíga- röðinni eru byggð nánast eingöngu úr hraunslettum, eða kleprum, en gjalli aðeins í litlum mæli. Fonn og stærð gíg- anna er margbreytileg, allt frá reisulegum stamplaga gigum, 10-20 m háum, til lágra kleprahrúgalda eða rima sem rísa einungis 1-2 m yfir umhverfi sitt. Hraunrennsli frá Undirlag hraunsins Yngra-Stampahraunið hefur runnið yfír eða upp að öllum myndunum sem það kemur að og eru jaðrar þess því tiltölulega auðraktir. Á nokkrum stöðum við jaðarinn, þar sem rofíst hefur undan honum eða efnisnám verið stundað, má fyrirhafnar- lítið skoða undirlag hraunsins og sjá hvað þar dylst. Á 4. mynd eru sýnd þrjú jarð- lagasnið sem ná undir hraunið. Snið 1 og 2 eru úr gjallnámum í gígum Eldri-Stampa- gígaraðarinnar. Má þar auðveldlega sjá undir Yngra-Stampahraunið þar sem það hefur runnið upp að gígunum. Við suð- vesturströndina hefur víða rofíst undan hraunjaðrinum og eru þar góðar opnur. í sniði 3 við Valahnúk, einu af lykilsniðun- um á Reykjanesi, má sjá jarðveg með gjóskulögum bæði neðan og ofan hrauns- ins. Eru þar varðveitt flest Reykjaneslögin (R) auk annarra gjóskulaga sem eiga mun 216

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.