Fréttablaðið - 20.06.2009, Page 8
8 20. júní 2009 LAUGARDAGUR
ÍRAN Æðsti klerkur Írans, Aya-
tollah Ali Khamenei, hótaði því
í gær að ef mótmælum yrði ekki
hætt í landinu yrði gripið til
harðra aðgerða gagnvart þeim.
Þúsundir manna hafa mótmælt
úrslitum forsetakosninganna í
landinu á götum Teheran síðast-
liðna viku.
Khamenei tjáði sig í fyrsta
skipti um mótmælin í gær, og
sagði engin brögð hafa verið í
tafli í forsetakosningunum. Þá
tók hann afstöðu með Ahmad-
inejad forseta og útilokaði að
kosið yrði aftur. Hann kallaði
kosningarnar sigur fólksins og
sagði „óvini landsins“ í mismun-
andi heimshlutum hafa reynt að
véfengja öruggan kosningasigur
forsetans. Jafnframt sagði hann
að atkvæðamunurinn, ellefu millj-
ónir atkvæða, hefði verið allt of
mikill til þess að um svindl hefði
verið að ræða. Ekki væri hægt að
falsa ellefu milljónir atkvæða.
Stuðningsmenn stjórnarand-
stöðuleiðtogans Mousavi brugðust
ekki við hótunum æðsta klerks-
ins og þegar blaðið fór í prentun
stóð enn til að mótmæla í dag við
Frelsis torgið svokallaða. Mótmæl-
in eru bönnuð samkvæmt lögum
en þau hafa ekki verið stöðvuð
enn. Á því gæti orðið breyting í
dag.
Leiðtogar Evrópusambandsríkj-
anna funda þessa dagana og marg-
ir þeirra, meðal annars Gordon
Brown, forsætisráðherra Bret-
lands, og Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, lýstu yfir ótta sínum
vegna yfirlýsinga um að ráðist
yrði gegn mótmælendum.
Farsímaþjónusta liggur að
mestu niðri í Teheran og yfirvöld
hafa lokað fyrir margar heima-
síður á internetinu. Meðal annars
hefur verið lokað fyrir vef breska
ríkisútvarpsins og samskiptavef-
ina Facebook og Twitter. Aðstand-
endur Facebook hafa brugðist við
með því að láta Írani nota pers-
neska útgáfu af vefnum og Google
hefur tilkynnt að þýðingarvél
úr persnesku yfir á ensku verði
hleypt af stokkunum. Það hefur
því verið hægt að skipuleggja
mótmælin. thorunn@frettabladid.is
MEXÍKÓ, AP Sjö borgarstjórar,
fyrrum ríkissaksóknari og nítján
aðrir embættismenn í Michoacan
í Mexíkó hafa verið ákærðir fyrir
að hafa aðstoðað við eiturlyfja-
smygl.
Lögreglan í Mexíkó fór í
umfangsmiklar aðgerðir í lok
maí og handtók mennina og fleiri
sem ekki hafa enn verið ákærðir.
Mennirnir eru sagðir hafa aðstoð-
að La Familia glæpasamtökin og
misnotað aðstöðu sína sem emb-
ættismenn. Glæpasamtök í Mex-
íkó hafa löngum verið þekkt fyrir
að múta lögreglumönnum, en svo
víðtæk tengsl við háttsetta emb-
ættismenn eru sögð vera merki
um aukin völd þeirra. - þeb
Fíkniefnastríð í Mexíkó:
Borgarstjórar
meðal ákærðra
GRIKKLAND, AP Safnstjóri nýs
grísks safns hefur óskað eftir að
Þjóðminjasafn Bretlands skili
styttum sem eru til sýnis í safn-
inu og voru fjarlægðar frá Akró-
pólishæð fyrir tveimur öldum.
Dimitris Pantermalis safnstjóri
hins nýja Akrópólissafns segir að
opnun safnsins um helgina veiti
tækifæri til að leiðrétta villi-
mennskuna sem fólst í að fjar-
lægja stytturnar frá Grikklandi.
Styttusafnið er nefnt eftir
breska diplómatanum Elgin
lávarði sem flutti þær til Bret-
lands í byrjun nítjándu aldar
þegar Grikkland var enn hluti af
heimsveldi Ottómana.
Pantermalis vonast eftir góðum
viðræðum en hingað til hefur
breska Þjóðminjasafnið ekki vilj-
að láta stytturnar af hendi. - hds
Nýtt Akrópólissafn:
Vilja fornmuni
sína til baka
1. Hvaða ráðherra féll af hjóli
sínu fyrir utan ráðuneyti sitt á
fimmtudag?
2. Hvaða íslenska stuttmynd
er orðin mest verðlaunaða
stuttmynd sögunnar?
3. Hvaða íslenski landsliðs-
maður í handbolta þarf líklega
að leggja skóna á hilluna vegna
meiðsla?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 58
Harðari aðgerðir
gegn mótmælendum
Æðsti klerkur Írans hefur hótað því að hart verði gengið fram gegn mótmæl-
endum ef þeir láti ekki af mótmælunum. Leiðtogar Evrópuríkja hafa lýst yfir
ótta vegna yfirlýsinganna. Áframhaldandi mótmæli eru fyrirhuguð í dag.
Hanna Björk Valsdóttir hefur búið í Íran og þekkir vel til aðstæðna í Teheran. Hún
þekkir fjölda fólks í borginni og er enn í nánast daglegu sambandi við fólk þar.
„Allir sem ég þekki kusu Mousavi. Ég held að hann hafi
unnið stóran sigur,“ segir Hanna Björk. Hún segir að vinir
sínir tali um að valdarán hafi verið framið.
Mótmælin sem nú fara fram eru þau langstærstu frá
írönsku byltingunni fyrir þrjátíu árum síðan. Hanna segir
fólk ekki hafa þorað að mótmæla neinu. Það segi því mikið
um ástandið að nú sé mótmælt. „Venjulegt fólk er að fara
út á götur og mótmæla, sem það hefur aldrei gert áður.“
Mótmælin eru að sögn Hönnu alveg þögul og fólk gengur
um göturnar í þögn. Fólk sé jafnframt að mótmæla á
stöðum þar sem ekki sé hefð fyrir mótmælum, til dæmis á
venjulegum götum.
Ein vinkona Hönnu hefur nýlokið háskólanámi. Fjöldi
námsmanna sem hún þekkir voru handteknir fyrr í vikunni þegar ráðist var inn á
heimavistir háskóla.
HANNA BJÖRK
VALSDÓTTIR
Í TEHERAN Blaðamönnum og ljósmyndurum hefur verið bannað að starfa á
mótmælasvæðunum. Þessi mynd birtist á samskiptavefnum Twitter í fyrradag og
er frá mótmælunum þann daginn. Mótmælendur klæddust margir svörtu.
NORDICPHOTOS/AFP
12. júní
Forsetakosningar eru haldnar, þar
sem valið stóð á milli harðlínufor-
setans Mahmoud Ahmadinejad,
umbótasinnans Mir-Hossein
Mousavi og tveggja annarra. Kosn-
ingaþátttaka var svo gríðarlega
mikil að stjórnvöld þurftu að halda
kjörstöðum opnum sex klukkutím-
um lengur en ætlunin var.
13. júní
Tilkynnt er að Ahmadinejad hafi
sigrað í kosningunum. Mousavi
segir brögð í tafli og þúsundir
mótmæla á götum úti. Æðsti klerk-
urinn Ayatollah Ali Khamenei biður
fólk að styðja við bak forsetans.
14. júní
Ahmadinejad segir kosningarnar
hafa verið löglegar. Þúsundir
mótmælenda safnast saman á ný.
Khamenei boðar að skoðað verði
hvort brögð hafi verið í tafli.
15. júní
Hundruð þúsunda mótmæla í Teh-
eran og einnig í öðrum borgum.
Skotið er á mótmælendur og að
minnsta kosti sjö láta lífið.
16. júní
Fréttamönnum er bannað að
stunda vinnu sína frá mótmæla-
svæðum. Þúsundir mæta á úti fund
til stuðnings þeim, en enn fleiri
halda áfram að mótmæla á götum.
17. júní
Mótmæli halda áfram. Mannrétt-
indasamtök segja marga stjórn-
málamenn og aðgerðarsinna hafa
verið handtekna.
18. júní
Þúsundir halda áfram að
mótmæla, margir í svörtu til
minningar um þá sem látið hafa
lífið. Farsímaþjónusta verður óvirk
í Teheran um það leyti sem mót-
mæli hefjast.
19. júní
Khamenei ávarpar þjóðina í
bænastund. Hann segir kosning-
arnar sigur og tekur afstöðu með
Ahmadinejad. Ekkert kosninga-
svindl hafi verið framið. Jafnframt
hótar hann harðari aðgerðum
gegn mótmælendum.
RÖÐ ATBURÐA
VIÐSKIPTI Hrannar Pétursson, upp-
lýsingafulltrúi Vodafone, segir
ákvörðun kærunefndar útboðsmála
um að stöðva innkaupaferli Ríkis-
kaupa vegna fjarskiptaþjónustu-
samnings fyrir Landspítalann ekki
taka til þess hvort tilboð Vodafone
sé löglegt.
„Við viljum árétta að enginn
samningur hefur verið gerður á
grundvelli útboðsins enda stöðvaðist
samningsferlið þegar Síminn kærði
málsmeðferð Ríkiskaupa í byrjun
júní. Umrædd ákvörðun kærunefnd-
ar útboðsmála er heldur ekki endan-
leg, því nefndin mun taka efnislega
afstöðu til kæru Símans síðar þótt
hún telji rétt að stöðva innkaupa-
ferlið hjá Ríkiskaupum,“ segir
Hrannar og bendir á að ákvörðun
kærunefndarinnar sé bráðabirgða-
úrskurður sem nái eingöngu til
þeirrar ákvörðunar Ríkiskaupa að
framlengja gildistíma tilboða sem
bárust. Úrskurðurinn hafi því ekk-
ert að gera með lögmæti tilboðsins
frá Vodafone – sem fyrirtækið telji
að sjálfsögðu fullkomlega lögmætt.
„Það er hins vegar skiljanlegt
að Síminn reyni með lagaklækj-
um að koma keppinautum sínum
frá borðinu, því ekki býður hann
samkeppnis hæft verð. Í þessu tilviki
bauð Síminn rúmlega fjörutíu millj-
ónum króna hærra en Vodafone,
sem hefur þjónustað Landspítalann
í fimm ár án þess að nokkurn tíma
hafi borið skugga á það samstarf,“
segir Hrannar, sem kveður Voda-
fone nú bíða endanlegs úrskurðar
kærunefndarinnar. - gar
Vodafone áréttar að stöðvun símaútboðs fyrir Landspítalann sé ekki endanleg:
Síminn sagður beita klækjum
HRANNAR PÉTURSSON Upplýsingafull-
trúi Vodafone segir Símann ekki bjóða
samkeppnishæft verð.
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært konu fyrir stórfellda lík-
amsárás. Konan, sem er á sex-
tugsaldri, særði sambýlismann
inn að beini með hnífi.
Atvikið átti sér stað í ágúst
á síðasta ári. Konan veittist
að manninum með hnífi. Við
atlögurnar hlaut hann rispu og
skurði. Á framanverðum háls-
inum hlaut hann tíu sentímetra
langa rispu. Á litla fingur hægri
vinstri handar fékk hann sex
sentímetra skurð. Annan álíka
stóran skurð fékk svo maðurinn
á baugfingur. Báðir náðu þessir
skurðir inn að beini.
- jss
Kona á sextugsaldri ákærð:
Skar sambýlis-
mann með hníf
LÖGREGLUMÁL Um áttatíu prósent-
um fleiri innbrot voru skráð hjá
lögreglu í maí en á sama tíma
í fyrra, að því er fram kemur í
afbrotatölfræði Ríkislögreglu-
stjóra.
Í maí á síðasta ári voru innbrot
167 talsins en 303 í síðasta mán-
uði. Þá fjölgaði þjófnaðarbrotum
einnig mikið, um 38 prósent, milli
ára. Nytjastuldir eru einnig mun
fleiri nú en áður, en þeim fjölgaði
um rúm hundrað prósent.
Málum fækkar þó nokkuð í
flestum öðrum brotaflokkum, svo
sem eignaspjöllum, fíkniefnabrot-
um, ölvunarakstursbrotum og lík-
amsmeiðingum. - jss
Ríkislögreglustjóri:
Innbrotum
stórfjölgar
SVEITARSTJÓRNARMÁL „Ég hef sjálfur
heyrt þennan orðróm,“ segir
Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfull-
trúi vinstri grænna, spurður hvort
sjálfstæðismenn hafi boðið honum
sæti bæjarstjóra hefji hann meiri-
hlutasamstarf með þeim.
„Auðvitað hef ég rætt við bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins eins
og aðra bæjarfulltrúa um það
hvaða staða gæti komið upp en það
hefur enginn sem hefur eitthvert
umboð haft samband við mig, né
get ég litið svo á að einhver hafi
verið að bjóða mér neitt í þessa
veru.“
Gunnsteinn Sigurðsson, annar
maður á lista Sjálfstæðisflokks,
segir ekkert þessu líkt standa
til né heldur að verið sé að leita
að nýjum bæjarstjóra utan raða
bæjar fulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins. Spurður hvort þá sé ekki borð-
leggjandi að búið sé að ákveða að
annað hvort hann eða Ármann
Kr. Ólafsson, sem er í þriðja sæti,
verði næsti bæjarstjóri, svarar
Gunnsteinn: „Ég segi ekkert um
það, þetta kemur í ljós á mánudag-
inn.“
Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi
Samfylkingar, var einnig spurður
hvort hann hefði heyrt af því að
sjálfstæðismenn hefðu reynt að
fá Ólaf til samstarfs. „Nei, ég hef
ekki heyrt af því en ég hef enga
trú á því að hann sé svo vitlaus að
ljá máls á slíku,“ svarar hann.
- jse
Orðrómur í Kópavogi um að sjálfstæðismenn biðli til vinstri grænna:
Allir spá í það hvað gæti gerst
ÓLAFUR ÞÓR GUNNARSSON Bæjarfull-
trúar í Kópavogi hafa rætt um þann
möguleika að læknirinn komi sjálfstæðis-
mönnum til hjálpar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
GENF, AP Kona sem myrti einn
af ríkustu mönnum Frakklands
árið 2005, með því að skjóta hann
fjórum sinnum í höfuðið meðan
maður inn var bundinn fastur í
stól íklæddur latex-galla, var í
gær dæmd til átta og hálfs árs
fangelsisvistar í Sviss.
Cecile Brossard viðurkenndi að
hafa orðið bankajöfrinum Edou-
ard Stern að bana í miðjum kyn-
lífsleik. Brossard útskýrði athæfið
þannig að Stern hefði reitt hana til
reiði með því að kalla hana „millj-
ón dollara vændiskonu.“
Brossard hefur verið í haldi
síðan 2005 og gæti losnað úr fang-
elsi í lok næsta árs. - kg
Dæmd í átta ára fangelsi:
Myrti bankajöf-
ur í latex-galla
VENJULEGT FÓLK FLYKKIST ÚT Á GÖTUR
Skjálfti upp á 4,2
Jarðskjálfti upp á 4,2 á Richter
mældist um tvo kílómetra suðvestur
af Krísuvík laust eftir klukkan 18 í
gær. Skjálftinn fannst á Akranesi og í
Landsveit, samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu Íslands.
JARÐHRÆRINGAR
VEISTU SVARIÐ?