Fréttablaðið - 20.06.2009, Blaðsíða 72
52 20. júní 2009 LAUGARDAGUR
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í
handbolta hélt í morgun utan til
Eistlands þar sem liðið mun mæta
heimamönnum í lokaumferð undan-
keppninnar fyrir EM í hand-
bolta en úrslitakeppnin fer fram
í Austur ríki á næsta ári. Ísland
er þegar búið að tryggja sér sæti
í lokaúrslitunum en þarf engu að
síður helst á sigri að halda til að
tryggja sér efsta sæti riðilsins.
Liðið er þó mikið breytt og
aðeins fimm leikmenn í hópnum
nú sem fóru einnig á Ólympíuleik-
ana í Peking.
„Þetta eru ótrúlegar miklar
breytingar á hópnum, bara frá síð-
asta leik,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari. „En ég
hef fulla trú á þeim strákum sem
eru að koma inn í hópinn nú en þeir
fá nú tækifæri til að sýna hvað í
þeim býr. Þetta verður þó alls ekki
auðveldur leikur enda Eistlending-
ar með vel mannað lið sem hefur
staðið sig vel á heimavelli.“
Snorri Steinn Guðjónsson og
Róbert Gunnarsson fá nú frí og
Guðjón Valur Sigurðsson er búinn
að gangast undir aðgerð vegna
meiðsla.
Í staðinn koma þeir Kári Kristj-
án Kristjánsson og Fannar Frið-
geirsson inn í hópinn auk þess
sem Stefán Baldvin Stefánsson
og Andri Stefan Guðrúnarson fá
stærra hlutverk nú.
Snorri Steinn hefur verið að
jafna sig eftir meiðsli en Róbert
fær frí eftir langt tímabil. „Hann
var á síðustu dropunum,“ sagði
Guðmundur.
Ísland hefur farið taplaust í
gegnum leiki sína í undankeppn-
inni og dugir að öllum líkindum
eins marks sigur á morgun til að
tryggja sér efsta sæti riðilsins.
Ísland vann Makedóníu nú á mið-
vikudaginn og gerði þar áður jafn-
tefli við Noreg eftir að hafa verið
yfir allan leikinn. Guðmundur
segir að gott gengi liðsins hafi
vissulega komið sér þægilega á
óvart.
„Ég get ekki neitað því. Það er
mikil óvissa sem fylgir því að tefla
alltaf fram nýju liði í hverjum leik.
Ég hafði þó alltaf tilfinningu fyrir
því að þeir gætu klárað þetta.“
Hann segir það ekkert vafamál
að landsliðið sé að græða nú á að
hafa verið með B-landsliðsverk-
efni, svokallað 2012-landslið, í full-
um gangi síðan í haust.
„Það snýst fyrst og fremst um
að breikka hjá okkur leikmanna-
hópinn sem við höfum meðvitað
verið að gera. Við höfum þurft að
sækja mikið í þennan hóp vegna
meiðsla lykilmanna í landsliðinu.“
Eftir leikinn á morgun tekur við
langþráð sumarfrí hjá Guðmundi
og félögum. „Þá getur maður loks-
ins farið að anda. Þetta er búin að
vera mikil törn og mikið álag en
alveg frábært engu að síður.“
Hann segir að tímabilið sem nú
er að ljúka sé það besta síðan hann
gerðist þjálfari. Ísland náði frægu
silfri á Ólympíuleikunum og hefur
haldið dampi og vel það nú í vetur
þrátt fyrir mikil skakkaföll í leik-
mannahópnum.
„Okkur gekk bæði vel í æfinga-
leikjunum við Þjóðverja sem og í
leikjum okkar í janúar. Síðan hefur
líka gengið mjög vel í undankeppn-
inni. Það var auðvitað mjög svekkj-
andi að vinna ekki Noreg um dag-
inn þar sem við áttum það innilega
skilið. En okkur tókst að hefna
ófaranna gegn Makedóníu og þá
gleymdum við hinum leiknum.“
Leikurinn hefst klukkan 15 á
morgun og verður í beinni útsend-
ingu á RÚV. eirikur@frettabladid.is
Ótrúlegri handboltavertíð að ljúka
Ísland mætir á morgun Eistlandi í lokaumferð undankeppni EM í handbolta en lokakeppnin fer fram á
næsta ári. Þar með lýkur handboltavertíð sem hófst með undirbúningi fyrir Ólympíuleikana í Peking.
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN Guðmundur Guðmundsson stýrir sínum mönnum gegn
Makedóníu á miðvikudaginn var. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Fjalar Þorgeirsson
þurfti að fara meiddur af velli í
hálfleik í leik Fylkis og Stjörn-
unnar í bikarkeppni karla á
fimmtudagskvöldið. Hann sagði
þó meiðslin ekki alvarleg en óvíst
hvort hann geti spilað með Fylki
gegn Grindavík á morgun.
„Ég var í raun meiddur fyrir
leikinn og hefði hugsanlega ekki
átt að spila. Ég er víst eitthvað
slæmur í festingum sem liggja
í kviðarveggnum og þarf bara
að hvíla mig til að leyfa þessu að
jafna sig. Ég var orðinn slæmur í
leiknum gegn Stjörnunni strax í
upphafi.“ - esá
Fjalar Þorgeirsson:
Meiðslin ekki
alvarleg
FJALAR Gæti spilað með Fylki á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LANDSLIÐ ÍSLANDS
Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson
Hreiðar Guðmundsson
Aðrir leikmenn:
Alexander Petersson
Andri Stefan Guðrúnarson
Fannar Friðgeirsson
Heiðmar Felixsson
Ingimundur Ingimundarson
Kári Kristján Kristjánsson
Ragnar Óskarsson
Sigurbergur Sveinsson
Stefán Baldvin Stefánsson
Sverre Jakobsson
Vignir Svavarsson
Þórir Ólafsson
Er ekki upplagt að koma við hjá okkur
á milli veiðistaða í sumar?
Nánari upplýsingar um opnunartíma og sýningar í stöðvum í sumar eru
á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
10
82
Frábært
land til
ferða-
laga!
Velkomin á sýningar Landsvirkjunar:
Dimmir hratt á draugaslóð Blöndustöð : Andlit Þjórsdæla Búrfellsstöð
Afl úr iðrum jarðar Kröflustöð : Hvað er með Ásum? Laxárstöð
List Kristjönu Samper Ljósafossstöð : Orkan frá Kárahnjúkum Végarði
Stöðvar Landsvirkjunar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
Aðgangur er ókeypis.