Fréttablaðið - 20.06.2009, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 20. júní 2009 3
Stóri músíkdagurinn verður haldinn hátíð-
legur hér á landi í fyrsta skipti á morgun en
sams konar tónlistarhátíð er haldin víða um
heim. „Í tilefni dagsins er fólk hvatt til að
flykkjast út á götur og syngja og flytja tón-
list að eigin vali. Á það jafnt við um áhuga-
sem atvinnumenn,“ segir Rannveig Sigur-
geirsdóttir, hjá Alliance Française.
Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur í
Frakklandi árið 1982 og heitir á frummál-
inu Fête de la Musique. Hugmyndin breidd-
ist síðan út og er nú haldið upp á daginn
í fimm heimsálfum, í yfir hundrað lönd-
um og 340 borgum. „Einhverra hluta vegna
hefur Ísland, sem þó er mikið músíkland,
ekki tekið siðinn upp og langaði okkur að
vita hvort grundvöllur væri fyrir honum,“
segir Rannveig. Franska sendiráðið, Alli-
ance Française, Grapevine, Höfuðborgar-
stofa og Rás 2 standa að baki deginum. „Þar
sem þetta er í fyrsta skipti sem við höldum
upp á daginn verður haldið pínulítið utan um
þátttakendur og verður hægt að skrá sig hjá
okkur en þegar fram líða stundir vonumst
við til að þátttaka verði að mestu sjálfsprott-
in að erlendri fyrirmynd.“
„Hugmyndin er að virkja almenning til
að koma út að syngja og tralla,“ segir Svav-
ar Knútur Kristinsson, einn af talsmönnum
dagsins. „Við verðum með flögg á Austur-
velli og Ingólfstorgi þar sem fólk getur stillt
upp en í framtíðinni erum við að vona að það
verði óþarfi og að ungir sem aldnir fari bara
út á næsta götuhorn. Markmiðið er að fólk
komi saman og deili ást sinni á músík hver
svo sem hún er.“
Botn verður sleginn í daginn, sem er
jafnan haldinn í kringum sumarsólstöður,
með tónleikum á Rosenberg en þar verður
franska tónlistamanninum Serge Gainsbourg
gert sérstaklega hátt undir höfði. Hljóm-
sveitirnar Hraun, Retro Stefson, Sprengju-
höllin, Ólöf Arnalds og Rökkurró stíga á
svið og taka allar eitt lag með Gainsbourg.
Aðgangur er ókeypis og verður tónleikunum
útvarpað á Rás 2. vera@frettabladid.is
Músíkdagur að erlendri fyrirmynd
Stóri músíkdagurinn verður haldinn í fyrsta skipti á morgun en þá er fólk hvatt til að flykkjast út á götur og torg og flytja músík að eigin vali.
Sams konar dagur er haldinn hátíðlegur í yfir hundrað löndum og 340 borgum en hann var fyrst haldinn í Frakklandi árið 1982.
Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur í Frakklandi árið
1982 og heitir á frummálinu Fête de la Musique.
Fólk flykkist út á götur og torg til að hlýða á hvers kyns tónlist en aðgangur er ávallt ókeypis. NORDICPHOTOS/GETTY
Svavar Knútur segir markmið dagsins að fólk deili ást
sinni á músík með náunganum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
Listflug, vélflug og svifflug
verður á dagskránni á flughelgi
Flugsafns Íslands um helgina.
Flughelgi Flugsafns Íslands hefst
í dag og er hún haldin í tíunda
sinn. Svanbjörn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Flugsafns Íslands,
segir hátíðina skemmtilega fyrir
fjölskyldur. „Fjölskyldur hafa til
dæmis komið og farið í útsýnis-
flug.“
Á dagskrá flughelgarinnar
verður meðal annars Íslands mótið
í listflugi á vegum Flugmálafélags
Íslands, módelflug, fallhlífastökk
og spyrnukeppni milli bíls og flug-
vélar. „Þá stillir flugvélin sér upp
og fer lágflug yfir völlinn og bíll-
inn spyrnir og keppir við hana í
hraðakstri.“
Svanbjörn segir að ákveðið hafi
verið að halda heila flughelgi en
ekki flugdag vegna þess að gott
geti verið að hafa varadag til að
hlaupa upp á ef veður bregst.
Flughelgin stendur frá 10 til 17 á
laugardag og 11 til 17 á sunnudag
við Akureyrarflugvöll. - mmf
Svifflug
og vélflug
Listflug verður á dagskrá flughelgarinnar
á Akureyri í dag. MYND/HÖRÐUR GEIRSSON