Fréttablaðið - 20.06.2009, Blaðsíða 60
40 20. júní 2009 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Svo virðist
sem við séum
komnir inn í
land hinna stóru
katta!
Hér stendur
að konur vilji
rakaða karl-
menn! Hár er
slökkvari!
Ég get
sagt þér
að ég er
loðinn
frá toppi
til táar!
Heldur
betur.
Og á ég þá að
leggja það á mig
að fylgja hallæris-
legri tísku?
Aldrei í lífinu!
Ég held reynd-
ar að konur
fíli karlmenn
með ör!
Hvað með
umskorna
menn? Eru
þeir hafðir
hátt í metum?
Því meira sem ég
les, því fylgnari verð
ég því sem vinstri-
vængurinn segir.
Hvað veist
þú um
pólitík?
Bara það sem ég hef
lesið í „Doonesbury“. Að þú skulir hafa tíma
til að lesa
dagblöðin.
Eru
myndasögur
í dagblöðun-
um núna?
Ég veit aldrei
hvort ég
eigi að gefa
þjórfé.
Við erum búin
að fá nýjan
bíl!!
Af hverju
keyptirðu
nýjan
bíl?
Ég gerði
það ekki.
Ég er bara með þennan
í láni á meðan verið er
að gera við okkar bíl.
Því miður,
þetta er bara
lánsbíll.
Þýðir það að
ég eigi ekki
að ná í restina
af dótinu?
Þar sem pabbi minn á og rekur fyrirtæki sem selur þungavinnuvélar og varahluti í stærri tæki hef ég, frá því að ég man
eftir mér, átt alls kyns derhúfur, frisbídiska
og límmiða með myndum af jarðýtum og
beltagröfum. Meðan aðrir áttu plaköt með
Madonnu átti ég Caterpillar-límmiða og
gekk lengi vel með trefil sem var merktur
KolbenSchmidt.
Ég var ekki stór þegar ég lærði að svara:
„HAG Tækjasala“ í símann og gat tekið
niður skilaboð er vörðuðu lyftara eða mal-
bikunarvélar. Þar sem mikið var verslað
við Þýskaland var ég fljótlega búin að læra
einföldustu setningar á þýsku er vörðuðu
það að hringja seinna, bíða augnablik eða
hvort hægt væri að taka skilaboð.
Þegar ég eltist fékk ég svo fleiri störf að
inna af hendi, svo sem að bera kaffi í menn
sem gustaði um þegar þeir blótuðu, og úr
því að vera þýskumælandi símsvari varð
ég skeytaskrifari á þýsku og lærði hvernig
átti að panta legur í veghefla. Uppskar ég
ansi sérhæfðan vinnuvélavarahlutaorða-
forða á þýsku.
Mér hefur alltaf þótt gaman að þekkja til
þessa heims, kannski ekki séð fyrir mér að
þetta kæmi mér að miklum notum í fram-
tíðinni, en aldrei skal nokkur segja aldrei
því á einni viku varð grafan að frelsis tákni
íslensku þjóðarinnar. Í baráttu við bank-
ana hefur grafan orðið að nýjasta tólinu í
byltingunni, líkt og klippi græjurnar
voru á íslensku varðskipunum í
Þorskastríðinu. Eftir hundrað
ár verður kannski stytta af
gröfu á Austurvelli.
Ég sé jafnvel fyrir
mér gröfuhálsmen
– eyrnalokka – hár-
skart. Hver veit.
Margt er til.
Caterpillar-arfleifð mín
NOKKUR ORÐ
Júlía Margrét
Alexandersdóttir
• Rafhlaðan endist í allt að 15 tíma. Hentar vel í útileguna,
sumarbústaðinn og í ferðalagið. Þú stingur símanum eða
iPod í samband við Power2Charge og hleður af rafhlöðunni
• 6 millistykki fyrir t.d. síma, iPod, myndavélar og önnur 5V tæki
• Snúran er í litlu handhægu kefli
• Millistykki geymd í gúmmíbandi
• Ferðapoki
Hleðslutæki með
innbyggðri rafhlöðu
Hleður síma, iPod og myndavélar
Starfsmenn óskast
Óskað er eftir starfsmönnum vönum málningarvinnu og
almennri byggingarvinnu. Mikil vinna! Umsóknarfrestur
er til 25. júní. Framtíðarvinna fyrir góða menn.
Umsóknir sendist á vinnukraftur@hotmail.com