Fréttablaðið - 20.06.2009, Síða 13
LAUGARDAGUR 20. júní 2009 13
Seðlabanki Íslands hyggst boða
tíu til tuttugu stærstu útflutn-
ingsfyrirtæki landsins á fund til
að fara yfir gjaldeyrisviðskipti
þeirra. „Við munum setjast niður
með þeim og fara yfir þeirra við-
skipti,“ segir Tómas Örn Kristins-
son, framkvæmdastjóri upplýs-
ingasviðs Seðlabanka Íslands.
Hann segir að bankinn muni fara
yfir viðskipti einstakra fyrirtækja
og ræða við þau um hvað að baki
liggur. Hann bendir á að ýmislegt
geti haft áhrif á gjaldeyris tekjur,
svo sem verðþróun afurða og afla-
brögð. Hann segir að Seðlabank-
inn hafi sögulegt yfirlit yfir gjald-
eyrisviðskipti fyrirtækjanna sem
notað sé til að bera saman við
þróun síðustu mánaða.
Tómas segir að grunur sé um
að fyrirtæki geymi gjaldeyri á
erlendum reikningum í stað þess
að flytja hann til Íslands. Aðspurð-
ur segir hann það geta verið ákaf-
lega dýrkeypt og mikið áhyggju-
efni ef útflytjendur skili ekki
gjaldeyri til landsins. Það haldi
aftur af styrkingu krónunnar og
seinki vaxtalækkunarferli Seðla-
bankans.
Þrír starfsmenn Seðlabanka
Íslands fást einvörðungu við mál
tengd gjaldeyrissvikum. Auk þess
er starfsfólk Fjármálaeftirlitsins
að rannsaka málið. - bþa
Seðlabankinn krefst skýringa á gjaldeyrisviðskiptum:
Útflytjendur boðaðir til viðtals
SEÐLABANKI ÍSLANDS Sérfræðingur
Seðlabanka Íslands segir að slök skil á
gjaldeyri geti seinkað vaxtalækkunarferli
Seðlabankans. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Olíuverð hækkaði á mörkuðum í
gær og nálgaðist á ný 72 Banda-
ríkjadali tunnan. Hækkunin er
rakin til væntra verðbólguáhrifa
af auknum opinberum útgjöldum
í Bandaríkjunum.
Olíuverð náði átta mánaða
hámarki 11. júní og hefur haldist
yfir 70 dölum á tunnuna í vikunni.
AP fréttastofan segir hátt verð
skýrast af því að fjárfestar séu
bjartsýnni á það en áður að heims-
hagkerfið sé að ná jafnvægi eftir
gífurlegan samdrátt.
Aukinheldur eru miðlarar á
markaði sagðir fjárfesta í aukn-
um mæli í hráolíu og öðrum iðnað-
arvarningi til að verjast möguleg-
um verðbólguáhrifum og veikingu
dollarsins. - óká
OLÍUVINNSLA Maður gengur meðfram
olíuleiðslu á borpalli Venoco fyrir utan
Kaliforníuströnd í Bandaríkjunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Verð olíu hækkar á ný
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS)
hefur úthlutað símafyrirtækinu
Nova tíðniheimild á GSM 1800
MHz-tíðnisviðinu, án útboðs.
Ákvörðunin um úthlutunina er
tekin að höfðu samráði við önnur
fyrirtæki á fjarskiptamarkaði, þar
sem jafnframt var til umfjöllunar
framtíðarskipan tíðnisviðsins.
Þegar kallað var eftir athuga-
semdum var meðal annars vísað til
þess að nokkur þeirra fyrirtækja
sem fengið höfðu leyfi til uppbygg-
ingar á 1800-tíðnisviðinu hefðu
ekki staðið við skilyrði úthlutun-
arinnar og eitt leyfi meðal annars
verið afturkallað. Þá komi aðstæð-
ur í efnahag þjóðarinnar til með
að hafa áhrif á áform um uppbygg-
ingu á þriðju kynslóðar farsíma-
neti (3G) og hægja á endur nýjun
farsíma yfir í síma sem nýtt geti
það kerfi. - óká
Nova fær GSM
1800-leyfi PFS
FARSÍMI Póst- og fjarskiptastofnun segir
fyrirséð að samdráttur efnahagslífsins
hægi á þeirri þróun að fleiri taki upp
notkun 3G-farsíma.
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks sak-
sóknara vegna efnahagshrunsins
og fyrrverandi rannsóknardómari
í Frakklandi, er meðal þeirra sem
harðlega hafa gagnrýnt norræna
flugfélagið SAS fyrir tengsl við
fyrirtæki í skattaparadís.
Í norskum fjölmiðlum hefur
verið frá því greint að SAS hafi
leigt sextán flugvélar af óþekktu
fyrirtæki sem skráð er á Caym-
an-eyjum.
Eva segir viðskiptin algjörlega
óviðunandi í viðtali við E24.no.
Undir þau sjónarmið hefur meðal
annars tekið Erik Solheim, ráð-
herra umhverfismála í Noregi.
SAS flugfélagið hefur hins vegar
áréttað að félagið sé innan ramma
laga sem gilda um viðskipti af
þessu tagi.
Joly segir að heyra eigi fortíð-
inni til að óþekktir eigendur fái
staðið á bak við rekstur norskra
félaga og fyrirtækja. Hún segir
að tekjur og skattgreiðslur þessara
félaga eigi að vera uppi á borðum.
- óká
Joly gagnrýnir
SAS-flugfélagið
Á BLAÐAMANNAFUNDI Eva Joly ráðgjafi
og Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra
á blaðamannafundi í marslok.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
0
9
-1
0
7
3
www.bluelagoon.is sími 420 8800
Kynnisferðir verða með sætaferðir til Grindavíkur frá BSÍ kl. 19.30 og SBK fer frá Reykjanesbæ kl. 20.00.
Sætaferðir frá Bláa lóninu verða til Grindavíkur kl. 00.30 og til Reykjanesbæjar og Reykjavíkur kl. 01.00.
Jónsmessuganga
20. júní með Eyfa
Þegar á toppinn er komið mun Eyfi skemmta þátttakendum yfir varðeldi.
Gangan endar við Bláa lónið þar sem Eyfi mun spila til miðnættis. Lagt
verður af stað frá sundlaug Grindavíkur kl. 20.30. Ókeypis er í gönguna
en þátttakendur greiða aðgang að Bláa lóninu.
Bláa Lónið og Grindavíkurbær bjóða upp á hina árlegu
Jónsmessugöngu á fjallið Þorbjörn laugardagskvöldið 20. júní.
Grindavíkurbær