Fréttablaðið - 20.06.2009, Síða 30
30 20. júní 2009 LAUGARDAGUR
E
ftir um það bil þrjú
ár verður Skemmti-
garður inn í Grafar-
vo g i ó m i s s a nd i
viðkomustaður ferða-
langa og heimamanna
í Reykjavík í afþreyingarleit,
gangi áætlanir eftir. Garður-
inn verður iðandi af lífi, fjöri og
skemmtun, hvort sem er innan
dyra og utan. „Hugmyndin er að
nýta allan þann menningararf
sem við Íslendingar eigum til að
búa til eitthvað alveg einstakt.
Ljósið, vatnið og náttúran verð-
ur í fyrirrúmi og líka þjóðsög-
urnar og ævintýrin,” segir Eyþór
Guðjónsson sem oftast er titlaður
athafnamaður, enda athafnasam-
ur með meiru. „Við viljum virkja
áhuga Íslendinga á menningararfi
sínum og líka þeirra ferðamanna
sem hingað koma. Þetta kann líka
að hljóma svolítið væmið en ef við
getum gert Ísland að skemmti-
legra landi til að búa á, þá er til-
ganginum náð.“
Eyþór og kona hans, Inga, eiga
þessa framtíðarsýn sameigin-
lega. Þau höfðu lengi haft auga-
stað á Gufunessvæðinu í Grafar-
voginum, sem þau sáu fyrir sér
sem hinn fullkomna stað fyrir
skemmtigarð. „Nú erum við
að móta framtíðarsýnina fyrir
næstu ár. Við höfum þegar hafið
töluverða uppgræðslu á svæðinu
en við fengum styrk til þess frá
Reykjavíkurborg. Skógræktar-
félag Reykjavíkur ætlar líka að
veita okkur liðsinni. Svo langar
okkur að fá til liðs við okkur lista-
menn til þess að búa til útilista-
verk og hanna svæðið. Á endan-
um vonumst við til að þetta verði
skjólsæll gróðurreitur, ekki ósvip-
aður því sem Laugardalurinn er
orðinn í dag. Við viljum að það
verði ein allsherjarupplifun að
heimsækja garðinn.”
Dreymin en raunsæ
Draumarnir eru stórir en þau
Eyþór og Inga ana þó ekki að
neinu. „Við erum raunsæ og förum
varlega, sem sýnir sig til dæmis
í því að við erum að vinna mest-
megnis í þessu sjálf,“ segir Inga.
„Við höfum kappkostað að byggja
þetta upp án skulda, sem hefur
tekist að mestu leyti.”
Það er áskorun að byggja upp
skemmtigarð utan dyra á Íslandi.
Til stendur að byggja upp aðstöðu
innan dyra líka en útivistin á alltaf
að verða stór hluti af upplifuninni.
„Okkur finnst mikilvægt að fólk
takist á við íslenskar aðstæður og
skemmti sér sjálft, án þess að láta
mata sig. Þess vegna ætlum við til
dæmis ekki að setja upp rússibana
eða slík tæki. Gleðin verður að
koma innan frá,“ segir Eyþór.
Afþreying fyrir alla
Þegar þau Inga og Eyþór tóku við
svæðinu í september í fyrra var
það eitt risastórt tún. Þau byrjuðu
á á því að búa til vegi og bílastæði,
byggðu sér móttöku og settu upp
lasertag-aðstöðu og litboltavelli.
Svo hófst starfsemin smátt og
smátt. Garðurinn var ekki opnað-
ur formlega fyrr en í maí síðast-
liðnum en þó hafa mörg þúsund
manns þegar lagt leið sína í hann.
Flestir hafa komið í fyrirtækja-
og skólahópum. „Við fáum til
okkar hópa, allt frá tíu manns upp
í tvö hundruð. Við skipuleggjum
líka stundum daga þar sem gleðin
hefst innan fyrirtækjanna, fer svo
um allan bæ og endar í Skemmti-
garðinum.”
Afþreyingarmöguleikarnir í
garðinum eru margir nú þegar.
Tveir leikvellir hafa verið
byggðir, frumskógurinn og Villta
vestrið, og innan skamms bæt-
ist víkingavöllur við. Við hönnun
leikmyndanna fengu þau hjónin
aðstoð Robb Wilson King, sem er
þekktur leikmyndasmiður í Holly-
wood. Honum kynntist Eyþór
fyrir nokkrum árum þegar hann
lék góða gæjann í hrollvekjunni
Hostel. „Við hönnuðum leikmynd-
ina reyndar sjálf. Við skoðuðum
til dæmis Lukku-Láka bækurn-
ar og horfðum á kúrekamyndina
Bandidas til að fá hugmyndir að
rétta útlitinu. En svo var gott að
fá Robb og aðra reynda sérfræð-
inga til að fara yfir hugmyndirn-
ar okkar og koma með tillögur
að breytingum og sjá til þess að
flæðið sé í lagi,” segir Inga.
Þau eru í samstarfi við Frí-
stundamiðstöð ÍTR í Grafarvogi
sem er með aðstöðu sína á sama
Létu langþráðan draum rætast
Fleiri þúsund manns hafa þegar heimsótt Skemmtigarðinn í Grafarvogi. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir hitti hjónin Eyþór
Guðjónsson og Ingibjörgu Guðmundsdóttur, sem dreymir um að gera Reykjavík að skemmtilegri borg.
ALLTAF SAMAN Ingibjörg og Eyþór eru saman frá morgni til kvölds og njóta þess. Þau segjast vera góð blanda. Hann sjái um að láta sig dreyma en hún kippi honum reglulega aftur niður á jörðina. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
GAMAN Í Skemmtigarðinum er afþreying fyrir fólk á öllum aldri. Þar geta þeir sem
vilja fengið andlitsmálningu, eins og þessi hressa stelpa ber með sér.
MYND/EYÞÓR GUÐJÓNSSON
Hugmyndin er að nýta allan þann menningararf sem við
Íslendingar eigum til að búa til eitthvað alveg einstakt.