Fréttablaðið - 20.06.2009, Blaðsíða 32
ÞAÐ HEITASTA Í ...
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
ferðalög kemur út mánaðarlega
með helgarblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is
Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumynd Áslaug Snorradóttir, tekin í Delí
Pennar Hómfríður Helga Sigurðardóttir
Ljósmyndir Fréttablaðið, Áslaug Snorradóttir
Auglýsingar Benedikt Freyr Jónsson bfj@frettabladid.is
Hetjuferð á hjólum
Hópur ungra manna í ævintýra-
för um Ísland SÍÐA 6
HÁTÍÐ LITANNA!
ÁSLAUG SNORRADÓTTIR MYNDAR HINDÚA-HÁTÍÐINA HOLI Á INDLANDI.
Eyjahopp í Grikklandi
Leynistrendur og himinblátt haf
SÍÐA 2
JÚNÍ 2009
ferðalög
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ÍS
LE
N
SK
A
/S
I A
.I
S
/ N
AT
4
40
74
1
0/
08
2 FERÐALÖG
MORGUNMATURINN: Ég reyni að
fara á fastandi maga í ræktina og
fæ mér svo salat. Frosin jógúrt er
líka rosalega góð.
SKYNDIBITINN: Ég elska pitsu.
Kemst ekki yfir það. Það er
klárlega minn veikleiki, svo er það
Taco Bell-æði.
RÓMÓ ÚT AÐ BORÐA: Sushi,
katana, koi, katsuya. Rosa mikið af
flottum notalegum sushi-stöðum
þar sem er bæði hægt að sitja inni
og úti með útsýni yfir alla borgina.
LÍKAMSRÆKTIN: Equinox, Vestur-
Hollywood.
UPPÁHALDSVERSLUN: H&M,
Forever 21 og Aldo.
BEST GEYMDA LEYNDARMÁLIÐ:
Runyon-gil. Það er stór hunda-
garður sem skiptist í margar mis-
jafnar leiðir upp fjall og er í miðri
Hollywood en frekar falinn. Þarna
fara allir sem búa hér til að hlaupa,
í göngur og út með hundana sína.
Þetta er æðislegt og það er eins og
að fara til annars lands að koma
þangað.
BEST VIÐ BORGINA: Borgin er
æðisleg. Hún hefur upp á allt
að bjóða, menningu, djamm og
veitingastaði. Hún er stutt frá öllu,
ströndinni, Las Vegas, San Diego,
San Francisco og Santa Barbara.
Svo er hægt að fara á skíði rétt hjá.
HVERNIG ER BEST AÐ EYÐA
DEGINUM: Það er hægt að eyða
hverjum degi á nýjan hátt. Það er
bara alltaf best að vakna við sól-
skinið og blíðuna og bíða eftir hvað
kemur næst.
HEIMAMAÐURINN
Los Angeles
HILDUR EIK ÆVARSDÓTTIR
Þ
rátt fyrir að hægt sé að fljúga
beint til eyja eins og Krítar og
Ródós er óneitanlega skemmti-
legra að ferðast með ferju út í
eyjarnar. Þær búa allar yfir sínum eigin
persónuleika þótt þær deili fegurð strand-
anna, hins túrkisbláa sjávar og hvítkölk-
uðu húsa. Það er lítið mál að skella dótinu
sínu í bakpoka, finna gistingu á hverj-
um stað fyrir sig og leyfa örlögunum
aðeins að ráða ferð. Á grísku eyjunum er
hægt að finna frið og ró á leyniströnd-
um eða djamm á villtum næturklúbbum.
Eyjarnar eru misfrægar og misvelsóttar
af túristum. Krít, Ródos Mykónos og jafn-
vel hin fagra Santorini eru allar pakkaðar
yfir sumartímann og það er um að gera
að kanna litlu eyjarnar sem ferðamenn
þekkja minna. Hvernig væri til dæmis
að byrja á Milos, þar sem hin víðfræga
Venusarstytta fannst en hún er mjög vin-
sæl hjá pörum í rómantískum hugleiðing-
um, og eyjan Sifnos er kölluð Kalifornía
Grikklands vegna hins afslappaða and-
rúmslofts. Rétt hjá henni er Serifos sem
býður upp á stórfenglegar strandir.
Heimsferðir fljúga beint til Ródos
á Grikklandi en einnig er sniðugt að
fljúga til Aþenu frá Frankfurt, London
eða Kaupmannahöfn og taka ferju þaðan
yfir til eyjanna. Skemmtilegan leiðarvísi
er að finna á slóðinni http://www.fodors.
com/news/story_2980.html - amb
EYJAHOPP Á GRIKKLANDI
Himinblátt haf, hvítkölkuð hús og sól er meðal þess sem ber fyrir augu á grísku eyjunum.
Margar og misjafnar Grísku eyjarnar búa allar yfir eigin sérkennum en eiga þó sól, sand og ouzo sameiginlegt. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Úr alfaraleið Eyjurnar Milos, Sifnos og Serifos búa yfir leyniströndum.
F
erðatíma ársins, sumrinu, fylgir óhjákvæmi-
lega að pakka þarf niður í töskur. Ég hef nú
ferðast sæmilega mikið um ævina, innan-
lands sem utan, en seint ætla ég að verða
mjög góð í þessari list. Ég tek nefnilega yfirleitt of
mikið með mér í ferðalög. Og það kannast víst flestir
við það hve pirrandi það er að rogast með níðþung-
ar ferðatöskur, og ekki er á það bætandi ef maður er
á heimleið og veit að helmingurinn af farangrinum
var ekki notaður.
Það þurfti virkilega að horfast í augu við takmark-
anir mínar á þessu sviði fyrir nokkrum árum þegar
ég fór í vikuferðalag til útlanda ásamt vini. Ég var
með stóra tösku fulla af fötum en hann með nánast
ekki neitt. Samt með föt fyrir öll tækifæri. Ég ein-
setti mér eftir þessa ferð að hún yrði sú síðasta þar
sem ég tæki með mér föt sem ég fílaði ekki heima
hjá mér – líkurnar væru engar á því að ég fílaði þau
á ferðalagi.
Undanfarin ár hef ég mest ferðast innanlands og
þá á eigin bíl. Pökkun í bíl lýtur aðeins öðrum lögmál-
um og lengi vel fannst mér lögmálið að best væri að
hrúga sem mestu í bílinn alveg fullkomið.
Það var hins vegar áður en eitt barn og svo annað
bættust í fjölskylduna. Núna þarf ég sem sagt að
pakka þannig að í ekki sérlega stóran bíl komist föt og
tilheyrandi fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Í fyrstu
féllust mér nánast hendur, var næst-
um því búin að kaupa
nýjan bíl. Vandamálið
við ferðalög innanlands
er að allan ársins hring
er nauðsynlegt að taka
ullarföt og úlpu með,
það er virkilega allra
veðra von.
En þar sem nýr bíll
kostar sitt, ákvað ég
bara að skilja eftir
heima helminginn af
því sem mér fannst ég
þurfa að hafa með. Og
viti menn – það var í
góðu lagi.
Sigríður Tómasdóttir skrifar
FARANGURINN
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is